- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
199

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

i99i

in og ávextir urðu fágæt; mjólkur og hunangs varð að afla með
erfiði. En það sem verst var: gullið var horfið af yfirborði
jarð-arinnar og falið undir þykkum aurskriðum, sem árnar höfðu
bor-ið fram í vextinum. Síðan hafa engir náð í þennan málm, nema
refir, úlfar og svo nagdýrin.

Ollum þessum ókjörum fylgdu bardagar og blóðsdthellingar.
Feður og synir tóku nú að berast á banaspjótum — út af konunni
fögru. Sifjaspell og hórdómur urðu daglegir atburðir.

Bardögunum og morðunum fylgdi sigur einstaklinga og
ósig-ur einstaklinga. Sigrinum fylgdi drottinvald og einveldisharðstjórn.
Þaðan eru konungar komnir og allir yfirmenn. Ósigrinum fylgdi
þrælsánauð og ótti við hnefarjettinn. Þaðan eru komnir þrælar
og undirlægjur; og þar með var stjettaskipunin komin á, sem
síð-an hefir varaS allt til þessa dags.

Og frá þessari stundu hafa axarkjaptar og vigtennur ráðið
lög-um og lofum á jarðríki, og ranghverfan snuið upp á gjörvallri
voð hinnar sýnilegu tilveru.

Síðan konan kom í mannheim hefir guð aldrei talað við
nokkurn mann á jarðríki — ekki eitt orð.

Guðmundur Friðjónsson.

* *

Þótt vjer sjeum alls eigi ánægðir með sumt í þessari grein, eru þó svo
mikil tilþrif i henni og málið svo gott og kjarnyrt, að vjer höfum eigi viljað
synja hinum unga og efnilega höfundi hennar um rúm fyrir hana í riti voru.
EIMREIÐIN vill styðja unga höfunda og ljá þeim rúm, f)ó ekki sje allt sem
fullkomnast, — ef það er ljóst, að einhver efniviður er í þeim. Og að góður
efniviður sje í Gtiðmundi Friöjónssyni, um það erum vjer í engum vafa.

Það

þarf að eins aö hefia hann og fága, því hann er enn að mestu leyti eins og hann
hefur vaxið í skóginum, og því eðlilega nokkuð kvistóttur. Sumt af því, sem
þegar hefur birzt eptir G. Fr. (einkum sum kvæði) eru full sönnun fyrir þvi, aö
maðurinn er skald — betra skald en almennt gerist. Og málið sem hann ritar,
er svo kröftugt og rammislenzkt, að fár eða enginn mun berur gera núlifandi
manna. En ekki veröur það varið, að það er ekki ætíð sem smekklegast nje
Iaust við tilgerð, eins og einurð hans og þor stundum fær á sig nokkurs konar
gleiðgosablæ.

Ættu íslenzkar bókmenntir einhvern Mœcenas, þá mundi hann varla iðra
þess, þó hann verði nokkrum hundruðum króna til þess, að gefa þessum unga
liöfundi tækifæri á að stækka dálítið sjóndeidarhring sinn og hefla sig. Mætti þá
svo fara, að úr »den grimme ælling«, sem G. Fr. nú mun álitinn af sumum,
yrði — svanur.

Ritstj.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0225.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free