- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
1

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Góðar taugar.

t

»Night is tlic time for crimc and darkesl decds
nnd it is then that zuild thoughts enter onr brain.

N ótt, dimra, köld og eyðileg, hvíldi yfir einum af hinum
mörgu fjörðum, er skerast inn í austurströnd Islands. Hin daufa,
draugalega glæta, er hið niu nátta gamla tungl hafði varpað yfir
fjörðinn og kauptúnið, var um það bil að hverfa, því tunglið var
að ganga á bak við himinháan fjallshnúk, sem reis upp í suðvestri,
rjett á bak við kauptúnið, hulinn snjó ofan í miðjar hlíðar og
hjelugrár þar fyrir neðan; því nú var komið haust, og þetta var
síðasta nóttin í septembermánuði, svo engin furða var þó kalt
væri orðið. Hinum megin fjarðarins, andspænis kauptúninu grillti
óljóst í nokkur hvítgrá hús, sem stóðu á ströndinni, og á bak við
þau aptur í fjöll, — ekkert nema hrjóstrug, há og eyðileg fjöll,
sem náðu óslitin svo langt se’m augað eygði norður og suður
með firðinam.

Ekki svo að skilja, að myrkrið væri svartara eða kuldinn
meiri eða útsýnið eyðilegra á þessum eina firði, heldur en á
oðr-um fjörðum þar nálægt; því fór fjarri. Myrkrið var alls staðar
jafnsvart, og alls staðar bljes sami kuldanæðingurinn — kaldari enn
nokkru sinni áður um sumarið, rjett eins og hann væri að minna
mann á, að blessað bjarta, næturlausa íslenzka sumarið væri nú
liðið; en eyðilegur langur og dimmur heimskautsvetur væri í nánd.

Nótt! Hvað skiljum vjer við það orð? Það að sólin er horfin,
daguxinn liðinn, og myrkur komið yfir láð og lög. IJað, að
vinnu-timi vor er á enda, og vjer eigum að hvílast og sofa og safna nýj-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0007.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free