Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
53
enn meiri hita i fanginu sunnan að, og loksins kom gaukurinn, eins og
yfirdróttseti til að gæta aö, hvort allt væri nú i lagi; hann flaug hingað
og þangað, settist svo á unga björk, innst inni i hlýrri vik, og gól:
Vorið var komið; Noregur gamli vor loksins búinn!
Og þarna lá hann — hár og skinandi og speglaöi sig i bláma
hafs-ins; — svo fátæklegur og magur— svo hress, hraustur og brosatidi sem
nýþvegið barn.
I höfnunum fram með ströndinni varö ys og annriki, og hvit segl
undu sjer út i gegnum skerjagarðinn og hurfu út á hafið. Skiðunum
var stungið upp undir sperrulegginn, sleðafeldurinn vandlega stráður
kam-fóru og hengdur á afvikinn stað; og eins og björninn hristir loöna
bjór-inn, þegar hann kemur út úr hiðinu, þannig hristi fólkið þungu limina
sína, spýtti í lófana, og lagöi hönd á vorvinnuna.
Timburflekarnir hjeldu niður eptir elfunum og ösluðu kalt
jökul-vatniö; í breiðu, frjósömu sveitunum skar plógurinn langar, svartar rákir;
á norðurhjaranum voru menn að fást við saltfiskinn, sem breiddur var
á berar klappirnar; á sljettu flötunum vestur við hafið var verið að aka
þara út á akurinn, og inni á hálsinum stóð smávaxinn maður, súreygður,
og skimaðist um eptir bleikálóttri hryssu.« —
— A nokkur þjóð fegurri þjóðsöng en þetta, þó hann sje ekki
í ljóðum?
Hvernig getur það verið, að skald, sem vegsamar föðurland
sitt, eins og hann hefur gjört hjer, og hefur gefið oss myndir
(jeg nefni hjer eina einstaka »Else«), sern telja má til ágætustu
listaverka samtíðarinnar, og er þar á ofan tigulegasti
kjarkmaður-inn í norsku bókmenntunum, — hvernig getur það verið, að hann
hefur orðið að hætta? Já, meira að segja, að stórþingið hefur
synjað itrekaðri umsókn hans um skáldalaun, sem allir starfsbræður
hans, sem honum eru samtimis, hafa ? Og að um þetta voru ekki
aðeins allir hægrimenn sammála, heldur og mikill hluti
vinstri-manna — með vinstristjórnina i broddi fylkingar?!
Þetta fór fram meðan á versta þjóðmála-gauraganginum stóð.
Þjóðmálefnin og meðferð þeirra geta að sönnu verið hið göfgasta,
sem þjóðin á í eigu sinni; þau ættu lika aitjent að vera það, þvi
náunganskærleikinn kemur þar fram í sinni æðstu mynd. En
vanalega eru þau grár vefur miðlungsháttar, og stundum, og það
ef til vill ekki svo sjaldan, eru þau kjarnseyðið af ruddaskap
þjóð-arinnar. Sjerhver þjóð á eitthvað það í fórum sinum, sem gjörir
oss hreykna af þvi, að heyra henni til; en hún hefur lika sumt
það í fari sinu, sem gjörir oss kinnroða. Sje nokkur veigur í
oss, er það fremur hið siðarnefnda en hið fyrnefnda, sem stælir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>