Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
83
skoðanir á hverju því máli er fyrir kynni að koma og greiða
skyldi atkvæði um.
Vjer skulum vona að þeir tímar komi, að mennirnir verði
svo þroskaðir. A þeim tímum verður aldrei hætt við því, að
þing-bundnar stjórnarskipanir og venjur verði vanbrúkaðar, og í raun
og veru verður þjóðin þá fyrst nægilega þroskuð til þess að hafa
þeirra full not, og þá fyrst verður rödd þjóðarinnar rödd guðs, af
því að hún vill þá það eitt, sem satt er og rjettlátt.
Því miður verður þess þó lengi að bíða, að slíkri hugsjón
vehist framkvæmd, og sem stendur verðum vjer með kinnroða
að játa, að vjer erum harla langt frá takmarkinu. Úrskurður
meirihlutans er ekki ætíð vottur um óskir og vilja þjóðarinnar,
og þótt vjer getum ekki hiklaust fallizt á skoðanir þeirra
stjórn-málagarpa og heimspekinga, er sagt hafa, að »meirihliitinn hefði
ætíð rangt fyrir sjer«, verðum vjer þó að játa, að hugtök eins og
t. d. »almenningsálitið«, »rödd þjóðarinnar«, »dómur meirihlutans«
o. fl. eru jafnvel á vorum dögum blátt áfram staðlaus hremmiyrði
og hugarburður, sem vjer höfum nú einu sinni vanizt á að brúka,
trúa á, óttast og þrælka undir; jeg vil jafnvel leyfi: mjer að segja,
að þessi hugtök sjeu sem stendur enn staðlausari en tröll og
for-ynjur, þótt þau veki engu minni ugg og hjátrú; en ef vjer
at-hugum þau frá sjónarmiði lífeðlisfræðinnar og sálarfræðinnar,
verður optast reyndin sú, að þetta eru vanþroska hugsmiðar, er
myndazt hafa í sjúkum heila, afleiðingar nokkurra einkennilegra
atriða í sálarlifi manna, einkum hermihvatarinnar, og móttækileika
fyrir hugsanainnblástur.
Það er nú æltunarverk mitt í þessari grein, að færa stuttlega
sönnur á þetta frá sjónarmiði lífeðlisfræðinga, og þannig, ef til
vill, komast að þeirri niðurstöðu, að orðtakið: Vox popidi, vox
dei sje með engu móti rjettmætt á vorum dögum, fremur en það
hefur verið það á umliðnum öldum, enda þótt vjer verðum stöðugt
að vona, að það megi öðlast fullt gildí í framtíðinni, þegar
mann-kynið hefur náð svo miklum andlegum þroska, að menn verða
ekki einungis gæddir hlýjum fjelagsanda, heldur og verða rjettsýnir
og sjálfstæðir, með öðrum orðum hafa fengið sjálfstætt manngildi.
Flestir munu hafa tekið eptir því, að því nær ætíð verður stór
breyting á mönnum þegar þeir koma saman í hóp; ef til vill hafa
þeir hver um sig reynzt oss alúðlegir, friðsamir og rjettsýnir
menn; en þegar þeir svo koma saman á mannamót, aðalfund eða
6*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>