- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
149

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

49

Mýra-, Borgarfjarðar- og Kjósar- sýslur) færi þá á mis við þann
hagnað, sem af frjettaþráðarsambandinu mætti hafa. Því litil
Jík-indi eru til, að landið geti í nánustu framtíð komið sjer upp
land-þráðum af eigin rammleik, og engin minnsta von um styrk til þess
frá öðrum þjóðum.

En hjer við bætist og annað. Það er sem sje síður en svo,
að enn sje nokkur vissa fyrir því, að nokkuð verði af því, að
sæsími verði lagður til íslands. Það er algerlega undir því komið,
hvort nægilegt fje fæst til hans frá útlendum þjóðum. Nú hefur
verið farið fram á, að England legði fram 1,080,000 kr. (£ 60,000)
til sæsimans, en enska stjórnin kvað vera þvi fremur andvig. Það
er því alveg undir þingi Englendinga komið, hvort þessi
fjárveit-ing fæst. En áhugi þingsins á málinu er aptur mestmegnis
kom-inn undir því, hve mikið verzlunarfjelög og fiskiveiðafjelög leggja
að þvi með að veita fjeð. En nú hafa einmitt hjá enskum
verzl-unar- og fiskiveiðafjelögum komið fram sterkar raddir í þá átt, að
því að eins væri nokkur hagsmuna von fyrir þau af fyrirtækinu,
að sjeð yrði um, að allur meginhlutinn af ströndum Islands
kæm-ist um leið í frjettaþráðarsamband við útlönd. En væri að eins
um einn stað að ræða, væri ensku fje varla til þess kostandi. Það
gæti því vel orðið öllu frjettaþráðarfyrirtœkinu að falli, ef
Islend-ingar sýndu lítinn áhuga á að koma upp hjá sjer landþráðum
jafn-hliða sæsíma. En sýni þeir aptur eindreginn áhuga í þessu efni,
er mikil von um fjárstyrk frá Englendingum, og fengist hann,
raá álíta fyrirtækinu borgið.

Það er því vonandi, að Islendingar sýni nú bæði hyggindi og
rögg af sjer og geri eitthvað sjálfir til að greiða fyrir landþráðum
og þar með málinu í heild sinni1.

»Sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi fœr«.

Valtýr Guðmundsson.

1 Áður en próförk af þessari grein var lokið, hafa mjer borizt íslenzk blöð
frá Rvík, og virðast þau líta nokkuð reykvíkskum augum á málið og vera
furðu nærsýn. En þröngsým sumra þeirra stafar þó vafalaust fremur af
því, að þau hefur vantað nægar upplýsingar um málið, en að nokkur
til-hneiging til hreppapólitíkur hafi villt þeim sjónir.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0163.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free