- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
164

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

64

sjer með Aladdínslampa sinum, og ekki líður á löngu, áður vjer
sjáum hann endurskapa með lífi og fjöri allt það, er hann eygir
þar inni. Honum virtist samtíð sín snauð að hugmyndaflugi og
lifandi tilfinning, og þess vegna hlaut hann að leita til fornra tíma
og fjarlægra landa og klæða hugsanir sínar og tilfinningar þeirra
búningi. Þannig kveður hann »gáfunni« lofsöngva i »Aladdin«
í austurlenzku og ekki sjerlega borgaralegu sniði; þannig lýsir
hann »harla ónytsömum« hetjudug í »Hákoni jarlu og öðrum
sorgarleikjum. En fyrst og fremst sýndi hann þó, að þann
skáld-skap, sem að hans skoðun var að nokkuru nýtur, var einnig að
finna í innlendri »Jónsmessugleði« frá samtíðinni, á okkar góða og
gamla Dýrhagabakka; að vísu voru yfirnáttúrlegar verur þar með
í leik. Lif og fjör, svellandi líf og eldheitt fjör með æskuroða i
kinnum er aðaleinkennið á skáldskap Øhlenschlägers, og meginið
af kveðskap Dana á seinni tímum ber líkan blæ.

Hann var riðinn á vaðið. Nú rjeðu þeir allir til inngöngu
í undraskóg hinnar rómönzku stefnu, allur herskari hinna dönsku
skálda á fyrri helming 19. aldarinnar. Það, sem þeim lá á hjarta,
voru engar almennar hversdagsdyggðir. Guð minn góður!
And-legar kartöflur og kálmeti eða annað góðgæti af líku tægi gåt svo
sem hver maður ræktað sjálfur í hinu daglega lííi. Nei, íturvaxið
stórviði og yndisblóm drauma og tilfinninga var að þeirra skoðun
hið eiginlega eðli mannsins. A meðal þessara manna var Schack
Staffeldt, er kveður angurblíðum rómi um þögula löngun og
þrá. í>ar var Grundtvig, skáld meðal sagnfræðinga og
sagnfræð-ingur meðal skálda, þrautseigasti andstæðingur nytsemisstefnunnar
og þó öflugasti nytsemdai’postuli í elztu þýðingu orðsins, sá
mað-ur, sem í bók sinni »£œttir úr hetjulifi Norðurlaiida« »sigldi eptir
átta-vita ’skáldskaparins nokkrum strikum nær sögunni en
Øhlen-schläger«, en stóð honum þó langt að baki að glöggleik og auðgi.
Þá má nefna friðsældarmanninn mikla, Ingemann, er gætir miður
hófs um karlhetjur skáldsagna sinna, en tekur flestum fram í
kvennlýsingum. Og þótt mikið megi honum til foráttu finna
fyrir ónákvæmni i sögunni, þá var það þó einmitt hann, er með
ljóðum sinum um »Valdemar mikla og menn kans« hefur látið
ætt-jörðu sinni þann skáldskap 1 tje, er nálgast mest verulega þjóðleg
söguljóð. Og það er hann, sem bezt hefur hitt bliðasta og
hrein-asta hreiminn í náttúrufegurð lands sins, eins og kemur fram
i »Morgun- og kvöldkvæðum« hans. Að miklu leyti gagnstæður

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0182.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free