- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
184

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

184

að hagga við, svo sem trúin á skírlífi kvenna og göfgi
mennta-manna; það úöi og grúði af talsháttum og orðtökum, sem einu
sinni höfðu verið ný og því smellin og viðeigandi, en nú voru
orðin bragðlaust glamur, af því alltaf var verið að tönnla á þeim.
— Svona var heldri borgarastjettin og svona voru bókmenntir
hennar. En eigi bókmenntirnar að lifa blómlega lífi, ættu þær helzt
ekki að vera fóstur fornra tíma og að eins eiga rót sína í andríki
feðranna, heldur skyldu þær sprottnar- af því sálarlífi
samtíðar-innar, er lengst er á veg komið, þ. e. sálarlífi með sjálfsbroska
og lífsmagni, eins og það bærist hjá þeim hluta þjóðfjelagsins,
sem helzt mætti telja máttarstólpa menningarinnar í landinu. En
forvígismemi vísindanna á þeim tímum, bæði hjer í Danmörku og
þá einkum annarsstaðar í Norðurálfunni, voru komnir að allt annari
niðurstöðu, en bókmenntir vorar voru byggðar á um þær mundir.
Sveitafólk og fátækari borgarbúar skildu bókmenntirnar ekki, og
kunnu ekki að meta þær, þrátt fyrir það, að stjórnarbótin nýja
hafði innsiglað þýðingu þeirra og gildi, ef svo mætti að orði
kveða, og þótt einkanlega bændurnir hefðu aflað sjer talsverðrar
menntunar og þekkingar. Menn notuðu þá að eins sem dæmi
upp á hugþrúÖ, hjartagóð og saklaus náttúrubörn. Að vísu
lýstu þeir C. A. Thyregod og Anton Nielsen lífi bændanna,
bæði hið ytra og innra, siðum peirra og háttum, löngun og þrá.
En hvað stoðaöi það? Þeir voru báðir bændasynir og rjettir og
sljettir alpýðuskólakennarar. Þessar sárfínu, háskólagengnu
bók-menntahetjur vildu hvorki heyra þá nje sjá, og kölluðu þá
kenn-arahöfunda, í fyrirlitningarskyni! — En það voru nú samt sem
áður þeir og engir aðrir, er fyrstir manna brutu pá braut, er
bók-menntir komanda tíma skyldu ganga.

I bóklistum menntuðu mannanna var aptur á móti dúnalogn.
En þá kom stríðið 1864, þetta sorglega stríð, þegar Danir misstu
þriðjung ríkis síns, þegar allir háreistir loptkastalar um frægð og
frama hrundu til grunna, þegar allir hinir dýrðlegu draumar um
völd og viðlent ríki rákust á nákaldan, napran verulegleikann.
Margir beztu menn þjóðarinnar hugsuðu þá með sjálfum sjer:
»Hvað stoðar frægð og fegurð, þegar það er ekki annað en
skáld-skapur? Horfumst djarflega í augu við sannleikann, hve
hræði-legur sem hann er ásýndum.« Eins og líka J. P. Jakobsen segir
nokkrum árum síðar: »það er svo auðvelt að gleyma, að jafnvel

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0202.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free