- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
214

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

214

ýmsum efnum kveðjum Þýzkaland og þökkum því fyrir kennsluna,
— því að nú getum vjer í mörgu spilað upp á eigin spýtur, og
þar sem oss er ábótavant, er hægt að læra af öðrum fullt eins vel
og Þjóðverjum«. Eins og þeir gætu sett Krúppsfallbyssu í
skjald-armerki sitt, þannig gæti og Danmörk látið sjer nægja með
smjör-fjórðung,— eins og fámennri og lítilþægri þjóð sæmir—; auðvitað
er það ekki eins tígulegt, en oss þykir nú samt sem áður fullt
eins mikið varið í það, sem er vort eigið, eða ef til vill öllu
meira. — Svona er nú skoðun flestra skynberandi manna í
Dan-mörku á þessu efni; má vel vera að það sje að taka nokkuð djúpt
í árinni, og sumir kunni að kalla það »Þjóðverjahatur«, — jæja,
þeir um það.

En Karl Gjellerup hefur nú einu sinni fengið ást á
Þýzka-landi, og víst er um það, að ýmsir af hans góðu eiginleikum sem
rithöfundar eiga þangað rætur að rekja, svo sem nákvæmni sú, er
hvervetna lýsir sjer i ritum hans, og að hann jafnan kryfur efni
sitt til mergjar. Mjer er lika nær að halda, að það stafi af þýzkum
áhrifum, að hann sneri baki við hlutsæisstefnunni og halla5ist að
stefnu, sem nálgast meir hina gömlu rómönzku stefnu bæði í
hugmyndum (t. d. þar sem hann talar um einkarjett gáfumannsins)
og í búningi, svo sem í sorgarleikjunum »Brynhildur« og
»Hag-barður og Signý«. Þessir sorgleikir hans eru þunglegir og
mál-skrafsmiklir; ef jeg mætti viðhafa líkingu í rómönzkum smekk,
mundi jeg helzt vilja líkja sorgleikjum Øhlenschlägers við riddara
frá dögum Valdimaranna íklæddan gylltri hringa-brynju og sitjandi
á fráum fáki, en sorgleikjum Gjellerups við riddara frá síðari hluta
miðaldanna i spangabreiðri brynju, svartan og þungan á fæti. Ljóð
hans eru hjer, — sem og annars t. d. í »Rauðþyrnum«, er hann
hafði áður ort,— höfug og auðgari að hugsun en tilfinning; þar
eru óhófin öll af samlíkingum, sem líka bera fremur vott um
skarpleik en tilfinning, en eru þó einatt einkar mikilfenglegar, eins
og t. d. sú, er hann eitt sinn leggur Brynhildi í munn:

»Nej, for denne Sol er runden röd fra rugende Tågemulm,
Ikke siddende Mænd til Gammen, ej til Lys i Gildeshal.
Men lig Sejerssværdets Lue vil dens Stråle slikke Blod,
För den gemmes tyst i Nattens stjærnenaglede raörkblå Balg.«1

1 Þ. e. Nei, því að þessi sól er risin roðaþrungin úr myrkum þokusorta, ekki
sitjandi mönnum til yndis nje til ljóss i veizlusölum. Heldur er hún
sem blossi sigursverðsins, geisli hennar vill sleikja blóð, áður hún felst
hljóðlega í hinum dimmbláu, stjörnuseymdu slíðrum næturinnar.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0232.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free