Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
59
áður og ríður að engu leyti í bága við ríkisráðssetu ráðgjafans.
Að landið hafi »löggjöf sína og stjórn út af fyrir sig« táknar það,
að islenzk löggjöf sé, að því er sérmálin snertir, óháð danskri
löggjöf og aðskilin frá henni, og að allir liðir löggjafarvaldsins og
umboðsvaldsins (en það táknar orðið »stjórn« á þessurn stað) séu
sérstakir og aðskildir frá löggjafar- og umboðsvaldi Dana, — að
konunginum einum undanskildum. Konungurinn er auðvitað algerlega
sameiginlegur bæði fyrir hið danska og íslenzka löggjafar- og
um-boðsvald, og það hlýtur hann líka að vera, þar sem hann er
konungur í einu alríki, en ekki í tveimur sjálfstœðum ríkjum, sem standi
í persónusambandi einu hvort við annað. Og þar sem nú
konungur samkvæmt alríkislögunum getur ekki tekið neinn verulegan
þátt í löggjöf og stjórn ríkisins, hvort sem er að ræða um það
alt eða einstaka hluta þess, nema í rikisráðinu, þá hlýtur ríkisráðið
að þessu leyti llka að verða sameiginlegt fyrir alt ríkið og hvern
einstakan hluta þess. Þetta viðurkennir líka forvígismaður
benedizkunnar, þar sem hann í ritgerð einni í Andvara (XVIII, 142) segir,
að það sé »vafalaust, að annar hinn íslenzki löggjafaraðili,
konungurinn, er erlendur, erlendum stjórnlögum háður í þeim atriðum
löggjafarinnar, sem mest um varða.« En þó að þessu sé nú
þannig varið, þá riður það þó engan veginn í bága við, að
löggjafar- og umboðsvald hvers einstaks ríkishluta geti verið aðskilið eða
út af fyrir sig, með þvi að konungurinn getur ekkert framkvæmt
í löggjöf eða stjórn, nema með aðstoð og samþykki hinna annara
liða löggjafar- og umboðsvaldsins (d: löggjafarþingsins og
stjórnar-innar eða ráðgjafanna, hvort sem þeir eru einn eða fleiri) í
hverj-um einstökum rikishluta. Með því nú þannig engin ályktun
konungs í sérmálum Islands getur fengið gildi eða orðið
fram-kvæmd, nema einmitt ráögjafinn fyrir ísland veiti benni samþykki
sitt og undirskrifi hana, þá hefir landið »löggjöf sína og stjórn út
af fyrir sig« eins fyrir því, þó að ráðgjafinn flytji málin fyrir
konungi í rikisráði alrikisins, — alveg eins og Danmörk hefir
löggjöf sína og stjórn út af fyrir sig, þó hinir dönsku ráðgjafar
flytji hin dönsku sérmál þar i nærveru Islandsráðgjafans.
En hvernig stendur þá á þessum mismunandi skilningi
al-þingis og stjórnarinnar á þessu ákvæði stjórnarskrárinnar? munu
menn spyrja. Hann stafar ef til vill að nokkru leyti af því, að
alþingi hefir um of einblínt á hinn íslenzka texta
stjórnarskrár-innar, en stjórnin aftur á hinn danska texta hennar. I íslenzka
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>