Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
68
sem Parisade sótti upp á töfrafjallið, svo sem segir í »Púsund og
einni nótt«; hvað sem um þetta er, þá er þetta hús merkilegt, þó
lídð sé: þar býr Jónas Helgason dómkirkju-organisti og
söng-kennari. Par gagnvart á vegamótum Laugavegsins og
Skólavörðu-stígsins stendur hiö reisulega hús Halldórs Þórðarsonar, tvíloftað
og með útskotum á hornunum, eitthvert hið vandaðasta og
skraut-legasta hús, og liggja höggvin steinstig með grindum beggjamegin
upp að dyrunum. Par býr Halldór Pórðarson og þar bjó
thorsteinn Gislason, ritstjóri hins margþjáða »íslands«, sem dó af því
enginn borgaði; en í litlu húsi þar við áföstu er
»Félagsprent-smiðjan«, og er innangengt þangað úr aðalhúsinu; þar er fegurst
Á. Thorst. phot.
HEGNINGARHÚSIÐ (ÞlNGHÚSIÐ).
leturgerð hér á landi, eins og sjá má á Hallgríms-sálmum og
Biflíu-ljóðunum og fleiri bókum þaban; þar er prentuð »Fjallkonan«. Pá
beygjum vér fyrir hornið og upp Skólavörðuslíginn, og er þá
fyrst til vinstri handar hús Árna Gíslasonar leturgrafara, sem
frægur er fyrir ritlist og málmgröft, og svo mjög, að útlendingar
hafa ekki viljað trúa, að verk hans væri gerð á íslandi. — Pá er
stór og mikilfeng steinbygging, og ekki úr höggnum steini, heldur
hlaðin upp eins og af jötnum og grjótinu klest í kalkiö, minnir
það á hina kyklópisku múra og byggingar á Grikklandi; það er
Þinghús bæjarins og hegningarhús, alment kallaö »tugthúsiö«;
það er dimt og ískyggilegt útlits; þar dæmir landsyfirrétturinn
dóma sína eins og Æsir við Urðarbrunn, en ekki er kunnugt, aö þar sé
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>