- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
80

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

6o

og berjarunnar gróðursettir fram með garöinum, sem er á milli
þessarar flatar og Bernhöfts; þar tímgast þessar útlendu jurtir vel
og verða fullar af berjum, þvf þar er skjól fyrir noröanvindunum
og nýtur vel sólar. Brú liggur yfir lækinn þar og stígur upp að
húsinu og nær hann alt upp að »Miklagarði«.

Par næst er LATÍNUSKÓLINN, hann er reisulegast hús í
bæn-um, tvíloftaður og kvistur á; hann kom tilhöggvinn frá Noregi. I
skólanum var áður alþingi háð og var alþingissalurinn í
norður-endanum þvert yfir, og gluggar á beggja megin; þar var hið
ráð-gefandi þing og þar var þjóðfundurinn haldinn, og var þá miklu
meiri alvara og samheldi og fjör en síðar; alþingismenn héldu

veizlur og
fjör-uga fundi, miklu
meir og öðruvísi
en nú, enda
vant-aöi ekki
leiðtog-ann, þar sem var
Jón Sigurðsson,
og þar hljómaði
rödd hans fyrir
fósturjörðunni og
þá voru margir

mælskir menn,
enda var þá ekki
alt niður kæft af
ófrelsi og
áfengis-bannsþrefi, eða
þess konar gutli, sem drepur niöur alt fjör með því að gera alla
syndlausa; en alt þetta er orðið öðruvísi síðan þingið fluttist í nýja
húsið, þótt hitt væri ekki eins skrautlegt, og mátti vel segja:
»betra er kál í kotinu með kyrö og ró«. Par sátu á þingi Jón
Sigurðsson, Jón Guðmundsson, Hannes Stephensen, Sveinbjörn
Hallgrímsson og fleiri þeir, sem þeir mutia, er þá voru við. — Á
veturna voru oft hátíðir og dansleikar í skólanum, og stofnuöu
piltar til þess, og var glaumur og gleði, stundum sjónleikir, en nú
er alt þetta horfið og hálfgleymd saga: langa loftínu skift í
lestrar-stofur og öll gleði og alt fjör horfið. Á kvistinum eru þrír gluggar,
og voru þar tvö herbergi, annað stærra, og þar var bókasafn
skólans, en í hinu minna þar við hliðina var náttúrusafnið, og var

Á. Thorst. phot.
I.ATINUSKÓLINN OG BÓKHLAÐA HANS.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0086.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free