Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
99
ina« með fílefldu gufumagni; er vélin undir húsinu og skröltir
allan daginn, svo húsiö leikur á reiðiskjálfi og eru þar sífeldir
»landskjálftar« eins og af hverakippunum í Krísuvík og ekki
ver-andi nema fyrir mestu fullhuga Þar er su voldugasta prentsmiðja
á landinu og bókasala mikil íslenzkra bóka, pappírsverzlun og
rit-fangasala ágæt. Á þessum stað var áður lítið og ljótt hús. og
bjó þar Þórður sýslumaður Guðmundsson; eftir hann kom
Billen-berg, þýzkur skósmiður; um hann var þetta sagt: »Það hleypur
í gegnum haus og merg | þegar hanarnir gala hjá Billenberg«;
seinast bjó þar Guðmundur Lambertsen, listamaöur mikill og
undar-legur nokkuð, og þar dó hann. Áfast við ísafoldar-húsið, eða því
nær, er hús Eyjólfs Porkelssonar úrsmiðs; það ereinkennilega bygtog
haglega, og svölugangur uppi. Þar næst er norðurendinn á hinu mikla
húsi Rafns Sigurðssonar skósmiðs og Magnúsar Benjamínssonar
úr-smiðs, en aðalhliðin á húsinu veit að Veltusundi, og er þessi endi því á
horninu á því og Austurstræti. Ný sölubúb fyrir skófatnað er bygð út
til Austurstrætis. og fagur svölugangur uppi yfir; slíkt hið sama er
og yfir bókverzlunarbúð ísafoldar, og eru öll þessi hús samföst
og til mikillar bæjarprýði. Bæði þessi Rafns helmingur og
millum-byggingarnar eru á því svæði, sem áöur stóð »Gunnlaugsenshús«;
þaö var nokkuð stórt timburhús, sem Björn Gunnlaugsson keypti
af Ditlev Thomsen, þegar Björn flutti með skólanum til
Reykja-víkur; þar bjó Björn lengi og kona hans Guðlaug Aradóttir,
einhver hin fegursta og frægasta kona á landinu, systir Ara læknis
á Flugumýri, og þar önduðust þau bæði, Björn og Guðlaug. Eftir
þaö fékk séra Matthías húsið og orti þar margt, og var þá heldur
skáldlegt í húsinu; eftir Matthías bjó Magnús Benjamínsson þar
um hríð, og þá var þar fult af úrum og hugvitsgerðum
gangvél-um, en þetta hefur alt orðiö að víkja fyrir rosabullum Rafns og
vatnsstígvélum. Nú sést ekkert eftir af þessu húsi. Gagnvart
þessu, eöa á hinu horninu á Veltusundi og Austurstræti og alt
yfir að Aðalstræti er HÓTEL ISI.AN’D, sem Halldör Guömundsson
sagði aö væri »þarfasta hús á landinu«; það er mest gestgjafahús
á landinu, og þar er mikill salur og fagur og góð herbergi, eftir
því sem hér eru föng á. I’ar stóð slagur milli botnverpinga og
íslendinga 27. sept. 1898, og var ekki mikið viðnám veitt af vorri
hendi; en ekkert blað gåt um þenna minnisstæða atburð.
Aðal-hliðin á »Hótel ísland« veit að Austurstræti, en gagnvart henni
er fyrst hið mikla vöruhús og sölubúð Eyþórs kaupmanns Felix-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>