- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
122

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

122

voru og nokkru seinna »grimudansar«, og var þar oftast fyllirí og
drasl og ekki nema ruslfóik.

Pegar skólinn fluttist hingaö, þá bar fyrst og lengi fram eftir
meira á skólapiltum en nú; þessir ungu menn gengu í augun á
ungu stúlkunum, sem von var, því þá var miklu færra um unga
og ógifta karlmenn af fínna tæginu; en þar er um að gera eins og
gerist. En þetta hefur jafr.ast síðan fólksfjöldinn óx. Útreiðar
voru þá hér um bil með sama móti og enn, og riðið á sömu
staðina, því hvergi eru gjestgjafahús, eða annað en bæirnir. — Pa
voru stundum bardagar á milli íslendinga og útlendinga, og ekki
sótt um leyfi til bæjarfógetans til að taka á móti þeim, eins og
vorar föðurlandshetjur gerðu þann 27. september 1898. Pá. barðist
Grímur í Görðunujn einn viö 30 Fransmenn og haföi einti iis, alveg
eins og Ormur Stórólfsson, þegar hann barðist viö 15 skeiðr (skip)
fyrir Eirík jarl Hákonarson, eða Porsteinn uxafótur á Orminum
langa1 — þessi orrusta stóð í Aðalstræti. Annars vildi þetta
sjaldan til. Drykkjuskapur var hér ekki meiri en við var að búast,
og víst ekki eins mikill og í hinum kaupstöðunum, enda hefur ávalt
verið meira gert úr honum en var; þá var heldur ekki komið
»Góðtemplarafélagið«, svo búast mátti við, að út af brygði í
ein-hverju, þar sem siðferðispostulana vantaöi. Rifrildi og ósamlyndi
var lítið, og hefur það helzt komið síðan með blöÖunum og
»Góð-templarafélaginu. Hér var fyrst einn lögregluþjónn; seinna voru
tveir, og hefur nú staöið viö það í hálfa öld eða meira, hversu
mikið sem bærinn hefur vaxið; viröist svo sem bæjarstjórnin hafi
tekið Kína til fyrirmyndar. — Nýlega hefur staðiö í einni bók, að
hér á landi hafi verið »gullöld« frá 1830—1840, og er líklega meint
til »Reykjavíkurpóstsins«; en frá 1840 til 1850 var hér líka
»gullöld«, og þar fram yfir var hér verulegur gullaldartími, því að um
þær mundir sáust hér á götunum framúrskarandi menn, fágætar
fígúrur sem ekki fæðast á hverri öld og munu ekki fæöast, fyr en
»Góðtemplarafélagið« og alt trúboðatildur er undir lok liðið og
hefur safnast til sinna feöra, þegar vér erum orönir lausir við
hræsnina og yfirdrepskapinti og sú heiðríka heiðni hefur aftur
haldið sína innreiÖ í þá nýfæddu Jerúsalem: þá voru hér þeir fjórir
brennivínsberserkir: Hróbjartur, Jón kopi, Sigurbur skalli og

1 Þessa getur ekki í Heimskringlu, enda er frásögnin í Fornmaimasögum fyllri
og fegri.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0128.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free