Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
202
Framfarir íslands á 19. öldinni.
Pað er svo bágt ad statida i stað, og mbnntmum munar
annabhvort aftur á bak ellegar nokkui á leið.
Hvað er þá orðið okkar starf í *senn hundrað sutmtr?
Hófum við gengið til góðs g’ótuna fram cftir veg?
Jónas Hallgrímsson.
Nítjánda öldin er að kveöja og við stöndum á aldamótum.
Við næstu áramót rennur upp ný öld, sem viö allir vonum að
veröi ný í fleirum en einum skilningi. Viö vonum, að hún hati
svo margt nýtt að færa okkur, — að húti verði frelsis og
fram-fara öld, heilla og hagsælda öld, svo aö þegar aftur sól hennar
rennur til viðar, þá verði okkar kæra fósturland búið fá á sig nýtt
snið og hagur landsmanna oröinn allur annar, en hann er nú.
Pað virðist því eiga vel við, að renna augum ytir ástand
lands-ins, eins og það er nú við og laust fyrir aldamótin, og
jafn-framt bera það saman við ástandið fyr á öldinni og um síðustu
aldamót, svo við getum gert okkur dálitla grein fyrir, hvað við
höfum verið að starfa í þessi síðustu 100 ár, og hvort okkur hefir
miðað fremur aftur á bak eða áfram. Af því má svo draga
nokkrar líkur um það, hverjar vonir viö getum gert okkur um
framtíð landsins á komandi öld. Pví ef það sýnir sig, að viö
höfum jafnt og þétt veriö aö þokast ögn áfram, svo að við séum nú
við aldamótin búnir að ná réttari og betri stefnu en áður, þá er
engin ástæða til að efast um, að niðjar okkar muni halda fyllilega í
horfinu, heldur miklu fremur til að vænta þess, að þeir verði
margfalt stórstígari en viö.
En því miður verður Eimreiðin rúmsins vegna að hafa yiirlit
þetta mjög svo takmarkað og bæði að sleppa að minnast á
ýmis-legt, sem þó væri vert að geta um, og hins vegar að eins drepa
á sumt í fám orðum, sem í raun réttri hefði átt að rita miklu
ýtarlegar um. En þetta verður nú samt svo að vera og Eimreiðin
huggar sig þa við það. áð nokkuö sé betra en ekki neitt og aörir
muni verða til að fylla upp í skörðin.
FÓLKSMAGNIÐ. Fyrsta framfaramerkið, sem verður fyrir
okkur er það, að fólksfjöldinn í landinu hefir aukist að miklum
mun. Árið 1801 voru landsbúar ekki nema 47,000, 1850 vóru þeir
orðnir 59,000, en nú eru þeir um 76,000. Má því svo að
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>