Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
205
alþingi íslendinga síðasta rothöggið og afnema það með öllu. Pó það
hefði langa hríð ekki verið nema skuggi hjá því, sem áöur hafði
verið, söknuðu margir þess þó sårt. En alt var samt látið kyrt
hinn fyrsta þriðjung aldarinnar. Fyrst eftir aö júlíbyltingin á
Frakk-landi 1830 hafði ýtt við mönnum og Danir tóku aö stofna
fylkja-þing hjä sér (1831), sem Islendingum var ætlað að senda fulltrúa
á, tóku menn að vinna af kappi að endurreisn alþingis, unz það
loks var endurreist með tilskipun 87a. 1843 sem ráðgjafarþing til
ab ræða þau lög og málefni, sem eingöngu snertu Island.
Þegar febrúarbyltingin á Frakklandi 1848 hafði komið enn meira
umróti á hugi manna, er hafði leitt til þess, að Danir fengu
stjórnar-skrá og löggjafarþing (B>/6. 1849), tóku menn undir forustu Jóns
Sigurðssonar að vinna að því, aö íslendindingar fengju hin
sömu réttindi og alþingi löggjafarvald. En með því stjórnin og
alþingi gátu ekki orðið ásátt um það, hvernig stjórnarskrá íslands
skyldi vera, né hvernig sambandi íslands og Danmerkur skyldi
vera varið, var barist um þetta í næstum heilan aldarfjórðung, unz
fjárhagurinn var aðskilinn og staða íslands í ríkinu ákveöin með
stöðulögunum *•/*• ’871 án samþykkis íslendinga. Um
stjórnar-skrána var barist enn, unz alþingi 1873 lagði málið á vald
kon-ungs, sem svo gaf landinu stjórnarskrá um hin sérstaklegu
mál-efni íslands 5,/i- 1874 »af frjálsu fullveldi«.
Samkvæmt stöðulögunum er ísland »óaðskiljanlegur hluti
Danaveldis meö sérstökum landsréttindum«. Oll íslenzk mál
skift-ast í tvo flokka: almenn mál og sérstök mál. Hin almennu mál
liggja eingöngu undir löggjafarvald Dana (konung og ríkisþingiö)
og íslendingar hafa engan atkvæðisrétt í þeim meðan þeir greiða
ekkert í ríkissjóð. Eina leiðin til að geta haft nokkur áhrif á
úr-slit þeirra er sú, að ráðgjafinn fyrir ísland tali máli íslendinga í
ríkisráðinu.
í hinum sérstöku málum (og í þeim flokki eru flest málin) er
samkvæmt stjórnarskránni löggjafarvaldið hjá konungi og alþingi í
sameiningu, framkvæmdarvaldið hjá konungi og dómsvaldið hjá
dómendunum.
í byrjun aldarinnar gåt konungur einn gert alt að lögum á
íslandi, sem honum þóknaðist, án þess að spyrja nokkurn
íslend-ing til ráða. En nú getur ekkert, er varbar Island sérstaklega,
oröið að lögum með varanlegu gildi, nema alþingi samþykki.
Konungur getur ekki breytt einum staf í lögum alþingis. Hann
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>