- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
212

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

212

Að því er myndlistina snertir, þá er frekast um afturför
að ræða. Reyndar hafa íslendingar aldrei átt neina fræga málara,
myndhöggvara né skrauthýsameistara. En af mörgu má þó sjá,
að listnæmi og hagleiksíþrótt hefir fyr meir verið langtum meiri
á íslandi en tiú. Pá vóru reflar, dúkar og tjöld prýdd
prýðis-fögrum listofnum eða útsaumuðum skrautmyndum, myndir af
goð-um, mönnum og dýrum o. s. frv. grafnar og skornar í tré og bein,
og malmmyndir og margs konar málmsmíði gert af hinum niesta
hagleik og listfengi. Til þess að sannfærast um þetta, þurfa menn
ekki annað en að bregöa sér inn á Forngripasafnið. í>ar má sjá
nokkuð af slíku frá öllum öldum. Og sama má sjá í
Þjóðmuna-söfnunum i Kaupmannahöfn og Stokkhólmi og jafnvel á söfnum í
Lundúnum, En nú má heita að allur þessi listaiðnaður sé nálega
horfinn hjá hinni íslenzku þjóð. Hér um bil einu menjarnar af
út-skurðinum munu nú vera fáeinir mataraskar, spænir og rúmfjalir í
sumum útkjálkasveitum, ef allur útskurður hefir annars ekki verið
lagður gersamlega fyrir óðal. Útsaumur og listvefnaður
(spjaldvefn-aður, flosvefnaður o. s. frv.) mun dálítið stundaður, en þó vera
skuggi einn hjá því, sem áður var. í málmsmíði mun nú lítið bera á
listasmekk og hagleiksíþrótt, nema í silfur- og gullskrauti því
(eink-um víravirki), er á við skautbúninginn, og þar þó mest fylgt
göml-um fyrirmyndum, en litlu eða engu nýju við bætt.

Eini málari aldarinnar, sem gengið haföi á listaskóla,
Sig-urður Guðmundsson († 1B74), var óefað miklum hæfileikum
búinn, en eftir hann liggur þó nauðalítið sem málara, af því hann
sökti sér algerlega niður í rannsóknir á þjóðháttasögu landsins.
En hann hafði þó eigi alllitla þýðingu fyrir landið, bæbi meö því
að glæða listasmekk manna og með því að koma
Forngripasafn-inu á fót.

Dálítill vísir til listasafna hefir þó komist upp á hinum síðasta
fjóröungi aldarinnar: málverkasafnið í alþingishúsinu, þar sem eru
mörg falleg og góð málverk, þó þau séu öll útlend. Par eru og
höggmyndir af Jóni Sigurðssyni og Hjarna Thórarensen og 2
högg-myndir eftir ungan íslenzkan myndhöggvara. Á Austurvelli er
myndastytta Alberts Thorvaldsens, eina myndastytta landsins.

í sönglistinni hafa framfarirnar orðiö miklar á hinum síðari
hluta aldarinnar. í byrjun aldarinnar gauluðu menn rímurnar og
kyrjuðu bæði veraldleg kvæði og sálma með eldgömlum
kirkju-lögum, sem höföu viðlíka sönggildi og söngur manna í Norðurálfunni

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0222.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free