- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
152

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

152

Löngun stúrin líður önn;
Ijúfum dúrum hallar.
Rjúpan lúrir lögð í fönn,
læst í búri mjallar.

Bárugangur bítur stein,
bjargatanga mótar.
Sýldum drang og svalri hlein
sær í fangi rótar.

Noröri andar kalt í kvöld,
kosti stranda grennir.
En fyrir handan vetrar völd
vorsól gandi rennir.

Skemdir gjólu bætir bezt
blær, er rólar suður,
þegar að stóli þorra sezt
þýður sólmánuður.

Roðna hnjótar, blána börð,
bleytur móta vegi;
belja fljót, en blómguð jörð
brosir móti degi.

Hreytinn hvarmur hefur brá,
er Harpa barminn sýnir.
Út í bjarmann eigra þá
allir harmar mínir.

Lopnir íingur færa sig
af fölskvabingnum inni.
Ég skal hringa og hjúfra mig,
Harpa, að bringu þinni.

Kuldaþjóstinn keyri eg braut
— kólguróstur linna —
munargjóst og meginþraut
milll brjósta þinna.

Guðmundur Friðjónsson.

Latínunámið.

(Eftir prófessor R. B. Andcrson)

Við höfum nógu lengi þjáðst undir hinu þunga oki Rómverja, sem
legið hefir á hálsi vorum í ýmsum myndum. f>að má skoða sem fjötra,
smíðaða af hinum rómversku keisurum, sem bagla í höndum hinna
rómversku páfa, sem vendi í höndum rómverskra skólameistara. Gotar
slitu fjötra hinna rómversku keisara, Lúter og Þjóðveijar brutu bagla
hinna rómversku páfa, en allar hinar tevtónsku þjóðir hafa í mestu
undirgefni kyst á vönd hins rómverska skólameistara, þótt einmitt hann
væri hættulegastur allra þessara þriggja: banvænt spjót hulið í höndum
flugumanns að launvígi.

■ Rómveijar voru ræningjaþjóð, bæði að því er snertir stjórnarfar
þeirra og bókmentir. Já, meira að segja sjálfir hinir rómversku
ritnöf-undar segja okkur, að hinn guðdómlegi höfundur borgarinnar, Rómúlus,
hafi verið rœningjaforingi; að herguðinn Mars hafi verið faðir hans, og
að vargynja (— rángirm), stigin niður af fjöllunum til að svala þorsta
sínum, hafi runnið á hljóð barnsins og fóstrað hann undir fíkjutré,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0164.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free