- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
176

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

176

»Hjó,« sagði Jón og saug upp í aðra nösina meira en hálfa
röstina.

»Það er víst býsna töff leið. Fílarðzi ekki ilia eftir triþpið
að norðan?«

»Ha!« sagði hann og lét flakka uppi hina nösina það, sera
eftir var á handarbakinu.

»Eg spurði, hvernig þú fílaðir eftir trippiö.«

»Hvernig ég hvað ?«

»Hvernig þú fílaðir eftir trippið.«

»Trippi,« sagði Jón og skildi nú loksins, hvað þessi náungi
var að segja. »Við komum vatnsveg að norðan. Vegirnir hjá
okkur eru ekki í því lagi, að hægt sé að brúka hross um þetta
leyti ársins. Stjórnin fer sér hægt að því, að gera við vegina, þó
við séum aö ámálga það við liana. En nú skal til skarar skríða
■á morgun.«

»Nokkuð hefir þó stjórnin gert fyrir ykkur. Er ekki svo?«

«Fjandinn ætli það sé. Peðrað fáeinum mútugjöfum hingað
og þangað, sem alt verður að engu. Við fáum ekki tíunda
part-inn af því, sem við eigum að fá, og höfum aldrei fengið. Við
eigum hjá henni stórfé, og annaðhvort skal hún út með það, eða
við látum hana kenna á því betur.«

»Hvernig víkur því við, að þiö eigið hjá henni stórféf«

»Veiztu þaö ekki? Hefir hún ekki áttatíu cent í nefskatt af
hverjum Islending? Og hvað fáum við af því? Slík ódæmi, sem
þaö gerir af peningum á ári, og nú er það búið að safnast saman
í tuttugu ár. Pað er sem ég segi, það er orðiö stórfé. Það hefir
alt veri5 reiknað út norður frá af manni með fimm tölustöfum.
Tökum okkur Ásdísi mína: Pað eru áttatíu cent á ári nefnilega
fyrir mig, og áttatíu cent ä ári fyrir Ásdísi. Pað eru liðugir tveir
dollarar á ári, eins og ■ hveitipokinn kostar. Það eru nefnilega
áttatíu cent á ári. Er ekki rétt?«

»Pa5 mun låta nærri. Eg heyri, að þú ert talsvert inn í
pólitík.«

»Ójá, lítiö eitt. En kunna þótti ég norður þar að tala um
pólitíkina. Manni lærist það í þessum sífeldu kosningum.«

»Í>a5 mun alt ganga vel hjá ykkur þar nyrðra,« sagði annar.
»Pið hafið sveitarstjórn, skóla, prest og kirkjur. Er ekki svo?«

»Sveitarstjórn höfum við, og fari hún í snjóhvítan andskotann.
Gerir ekki annað en heimta af okkur skattana, og ekki eru pen-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0192.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free