- Project Runeberg -  Friðþjofssaga /
33

(1866) Author: Esaias Tegnér Translator: Matthías Jochumsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

33

og þess \il eg sverja

svo konuDgborinn sem kotung verja.

Og Beli í hauginum heyra má
á hvert vort orð; með Friðþjófl sá
nú bræður bið^ir:

gœtið þjer vel þess, er gegnir yður!«

En Helgi þá svarar og styggur upp stóð:
»ei stoðar að mægjast við kotungablóð,
nje bónda slíkum

eg gef þá, er samir bezt gylfa ríkum.

Þú vinna mátt ríki og fjár afla frjáls,
þú fífla mátt koDur og stýfa hvern háls,
en ofurkappi

in ásborna verður ei þínu að happi.

Til landvarnar ríkinu ei þörf er á þjer;
eg það annast sjálfur, en viljir þú mjer
fylgja, þig fel eg

húskörlum vorum og sess með þeim sel eg«.

»Það seint hygg eg verði«, þá svaraði hinn,
»því sjálfræði ann eg, sem faðir minn.
Að öðling reiðum

þjer, Angurvaðill! nú bregð úr skeiðum«.

Þá geislaði sólin á gullbúinn hjör,
svo glóandi blika við rúnir á dör;

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 03:19:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/fridtjof/0067.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free