- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:6

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

hvem einasta morgunn klukkan
ell-efu, stundvíslega, og fékk þrjú
tvö-föld ginstaup. Stundum sagði hann
nokkur orð, með hinum viðfeldna
semingi sínum. En oftar sat hann
þögull og einn við borð, teygði fram
fæturna og horfði út á hafið. En
hvaða morgunn sem var, mátti
spegla sig í skónum hans.

Þegar ég hafði verið þarna
eitt-hvað mánaðartíma, man ég eftir því,
að ég sagði einu sinni við hann.þegar
hann- kom að afgreiðsluborðinu
eft-ir þriðja snafsinum:

— Það hlýtur að taka skolli langan
tíma að bursta skóna sína svona vel
á hverjum morgni. Er það ekki
James?

— Jú, svaraði hann, beygði sig
yf-ir borðið beint fyrir framan mig og
leit í augu mér. Hefurðu nokkuð
frelcar að segja um útlit mitt eða
klæðnað?

Hann er svo hvatskeytslegur að
mér brá.

— James, sagði ég, mig varðar
ekki vitund um útlit þitt. Og fyrst
við erum tveir einir, siðmenntaðir
menn, hérna inni í fyrsta flokks
ný-tízku hóteli, þá skulum við ekki vera
að rífast.

Hann glotti letilega.

— Heldurðu ekki? sagði hann.
Gæti skemmt okkur. Jæja, kannski
það sé rétt hjá þér.

Og dagarnir liðu, hver öðrum
verri. Það kom fyrir að ég bölvaði
við borðið mitt, eins og götustrákur.
En ég heyrði James aldrei bölva.
Hann var ávallt kaldur, háðskur,

óaðfinnanlegur og ómannblendinn.
Liklega var það rétt af honum —
sennilega hafa örlögin verið honum
svo þungbær, að tilgangslaus
blóts-yrði voru lítils virði.

Eg held að það hafi einungis
kom-ið fyrir í eitt skipti, er við töluðum
saman, að hann vék talinu ofurlítið
að sér. Það var síðla kvölds og við
voru tveir einir eftir. Eg var að
fár-ast yfir því, að það skyldi hafa hent
mig það ólán, að lenda á þessum
hryllilega stað peningalaus með öllu.
Og eftir nokkra stund sagði hann:

— Myndi þér nægja eitt þúsund?

Eg starði á hann orðlaus. •— Þús-

und pund? stamaði ég.

— Já, ég ímynda mér að ég geti
útvegað þér þau. Hann einblíndi
beint fram fyrir sig. — Þó veit ég
það ekki. Eg er farinn að venjast
þér og þú verður að vera hérna
eitt-hvað lengur. Við skulum athuga
málið.

— En í guðanna bænum, hrópaði
ég, áttu við það, maður, að þú
dvelj-’ir hérna þrátt fyrir það að þú
get-Jur rétt hendina út eftir þúsund
sterl-ingspundum?

— Það er engu líkara. Finnst þér
það ekki? Hann hellti í glasið sitt.
,Það hefur litla þýðingu, hvar þú
dvelur, Merton, þegar þú getur ekki
verið þar, sem þú myndir selja
vist-arvon þína í Himnaríki fyrir að fá
að vera. Og líklega er bezt að velja
þann stað, þar sem styzt er að
enda-lokunum.

Hann teygaði glasið í botn og gekk
út.

6

H EIMTLISRITIÐ

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0008.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free