Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Eg sá Heddy kvöldið eftir með
lag-legum stúdent. Þau beygðu niður að
tjörn. Eg vona að hún hafi ekki horft
of lengi á Karlsvagninn.
Eg hef lika séð Mill bregða fyrir.
Hann tók ofan og kinkaði kolli til
min.
Svo kom þriðjudagurinn. Um
kvöldið börðum við að dyrum hjá
Maju. Enginn anzaði. Heddy, sem
gerir alltaf það, sem henni dettur í
hug, opnaði dyrnar og gekk inn. Við
fórum í kjölfar hennar. Inni var
myrkur, en við heyrðum að elnhver
var í herberginu. Heddy kveikti.
Maja reis upp úr koddunum á
sóffanum og sparkaði gremjulega frá
sér:
„Hvað viljið þið?"
„Veiztu ekki, að það á að vera
fundur í kvöld, Maja mín?"
„Eg vil ekki heyra minnst á
þenr.-an bjánalega klúbb."
„En Maja", sagði Heddy. „Þú
hef-ur sjálf stofnað klúbbinn........"
„Það er alveg sama! Eg vú ekki
sjá ykkur. Ef þið farið ekki undir
eins, æpi ég."
Hún þreif einn svæfilinn og grýtti
honum í okkur. Svo .leygði hún sér
endilangri aftur á bak i sóffann.
Við flýttum okkur út. Hvað gátum
við gert annað?
Þetta var okkur hreinasta ráðgáta.
Hún hafði oft sézt með þeim háa,
síðustu viku og samt lætur hún
svona.
„Og ég hafði þó svo margt og
mikilvægt að segja í kvöld", sagði
Heddy.
Nokkru siðar bauð Maja okkur
heim til sín. Hún var því nær
ó-þekkjanleg. Augu hennar, sem áður
höfðu verið spottandi, þveri
.óðsku-leg og kaldranaleg, voru nú blikandi,
ennið bjartara og hún var orðin
kvenlgri. Eg einblindi á hana og mér
fannst ég vera í kirkju.
En Heddy kann aldrei að haga
sér.
„Heyrðu Maja", sagði hún. „Þú
átt eftir að skýra margt út fyrir
okk-ur. Okkur dettur ekki i hug að lá^.a
„Hver er þetta?" kallaði Lilly.
hljóp að borðinu og greip ljósmynd
sem þar stóð.
Maja steinþagði.
Við ætluðum af göflununi að
ganga. Myndin var af manni
grá-eygum, alvarlegum, festulegum og
ennismiklum.
„Eg skræki", sagði Heddy og greip
í handlegg Maju. „Hlustaðu á...........
Maja tók fyrir munninn á Heddy
og sýndi okkur svo hægri hendina.
Það blikaði á gullhring!
42
H EIMTLISRITIÐ
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>