Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
ar á þessum torræðu truflunum. Það
var nefnilega enginn svo djarfur að
láta sér detta i hug. að þær gætu
átt rót sina að rekja til
loftbylgn-anna, sem liðu meðfram yfirborði
jarðar i aliar áttir frá sprengistað
vigahnattar. Sama dag skráðu
einn-ig jarðskjálftamælarnir um allan
heim dálitinn jarðskjálfta, sem átti
upptök sín í Mið-Síberíu.
í MARZ 1927 ferðaðist rússneski
jarðfræðingurinn Kulik með
leið-angur til hinna eyðilögðu
Tungusa-tjaldbúða. Eftir mikla örðugleika
komst Kulik á staðinn, þar sem
vígahnötturinn hafði komið niður,
65 km. í norð-norðaustur frá
Van-ovara, 30 km. norðvestan við
Tung-usatjaldbúðirnar. Skýrsla hans
lýs-ir átakanlega umfangi þessara
nátt-úruhamfara. Hinn mikli siberiski
frumskógur var rifinn upp með
rót-um og hafði brunnið állt að 15 km.
út frá sprengjustaðnum. Fyrir utan
brunasvæðið hafði loftbylgjan feykt
trjánum um koll og allar
trjákrón-urnar sneru í suðausturátt. Þetta
svæði náði hvorki meira né’ minna
en 60 km. út frá miðdepli
bruna-svæðisins. Mönnum hefur talizt svo
til, að á 8000 ferkílómetra svæði
hafi 80 milljónir trjáa fokið um
koll.
Sjálfan sprengistaðinn gat
Ku-lik ákvarðað af stefnu hinna föllnu
trjáa. Hann var í gígmynduðu
dal-verpi, þar sem jarðvegurinn var
tættur upp og myndast höfðu
marg-ar tjarnir, sem voru um 50 metrar
i
HÉIMILISRITIÐ
að þvermáli og 4—6 metrar á dýpt
Hann fann engan jafnglöggan
viga-hnattargig, eins og þann, sem
þekkt-ur er frá Arizona.
Árið 1928—30 fór Kulik aftur á
staðinn, sumpart til þess að taka
myndir af hinum föllnu trjám og
sumpart til þess að grafa út eina af
hinum gigmynduðu tjörnum. Þar
fann hann vott af járni, nikkel og
kísilsýru, en stóra járnmola fann
hann þó enga. Boruninni var hætt;
þegar komið var 30 metra í jörð
nið-ur. Þar eð vígahnötturinn hefur
sennilega gufað upp við hinn
gífur-lega hita, sem sprengingin olli, er
mjög litil von um að hægt sé að
finna nokkrar teljandi leifar af
hon-um. Hinir innbornu Tungusar
full-yrtu þó, að þeir hefðu fundið stóra
mola úr hreinu járni, skömmu eftir
að „guðinn Agdy (eldguðinn) kom
niður af himnum til þess að refsa
hinum vondu".
Ýmsar tölur eru til yfir þá orku,
sem vígahnötturinn átti yfir að ráða,
þegar hann kom niður. Hér skal það
tekið til dæmis, að höggið sem
jörð-in varð fvrir v\ð áreksturinn, hefði
nægt til þess að slöngva milljón
tonnum 20 km. upp i loftið.
Við jarðarbúar getum þakkað okk
ar sæla, að slíkur geysivigahnöttur
skyldi hafa fallið á óbyggðan stað.
Hviliku feiknatjóni hefði hann ekki
valdið, ef hann hefði fallið niður í
stórborg, svo sem París eða London!
En sem betur fer eru> mjög litlar
likur á því að jörðin eigi eftir að
rekast á nýjan vigahnött.
13
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>