- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M7-8:25

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

ég sendi vörur svo nokkru nemi
yf-ir til New York. Það eru einkum
knipplingar frá Mecheln og
Valenci-ennes. Það er góður markaður fyrir
slíka vöru i Ameriku. Fyrir
nokkr-um mánuðum reyndi Bishop að
kaupa mig. En ég vil ekki vinna hja
honum né nokkrum öðrum. Og nú
er hann að reyna að kveða mig í
kútinn. Annars verzlar hann alls
ekki með slíkar vörur. En til þess
eingöngu, að ég geti ekki grætt á
mínum vörum hefur hann keypt
allt sem hann hefur komizt yfir af
’ knipplingum og öðrum
vörutegund-um, sem hann veit, að ég er að
senda og ætlar að selja þær með
engum hagnaði eða tapi i New York,
til þess að ég sé útilokaður frá
sam-keppninni. Vörur hans eru með
þessu skipi. Og það er útlit fyrir að
„Mauretania" komist i tækan tíma i
höfn, en ef..’."

„Ef, hvað?"

„Já, ég er búinn að segja yður, að
þetta eru fyrstu stóru viðskiptin,
sem ég hef ætlað mér að gera. En
ef Bishop hefði ekki sett fyrir mig
fótinn, þá — ja, þá veit ég ekki
nema að ég hefði verið eins áleitinn
við yður og Budger, Wilson, og hvað
þeir nú heita allir. En eins og nú
standa sakir, þá..."

Klukkan var orðin margt, og þau
voru ein á þilfarinu.

„Eins og nú standa sakir, megið
þér kyssa mig ef yður langar til".

„N....?"

„Eftir hverju eruð þér að bíða —
maður?"

HEIMILISRITIÐ

K TÆSÍ’A morgun var yndislegt
veð-ur. „Mauritania" hafði farið
með fullri ferð alla nóttina; það fór
varla hjá þvi, að skipið kæmist í
höfn fyrir hádegi, í siðasta lagi
kortér fyrir tólf. Bob Lee var svo að
segja orðinn gjaldþrota — en í bezta
skapi af gjaldþrota manni að vera.

Hann mætti Dorothy Miller á efsta
þilfarinu.

Hún var i fylgd með auðugum
spjátrungi, Hushley að nafni. Bob
gekk til þeirra, til þess að gefa
Dorothy tækifæri til að losna við
þennan leiðinlega náunga.

„Góðan daginn, fröken Dorothy",
sagði hann og brosti sinu fegursta
brosi.

Hún starði á hann undrandi og
afundin.

„Nú, eruð það þér, Lee?"

Bob vissi ekki hvaðan á sig stóð
veðrið. Var þetta sama, töfrandi
stúlkan, sem hafði verið
draumadis-in hans alla nóttina?

Hún leit út á hafið og sagði:

„Eg man reyndar ekki e’ftir því,
að ég hafi leyft yður að kalla mig
skirnarnafni minu. — Já, vel a
minnst, herra Hushley, þér ætluðuð
að sýna mér eitthvað viðvikjandi
merkjakerfinu. Eigum við að koma?"

Með kátlega grobbnum
hreyfing-um bauð hann henni arminn og þau
gengu í burtu án þess að virða Bob
frekar viðlits.

Bob gekk agndofa af undrun ofan
á næsta þilfar og settist í legustól
til þess að athuga málið, á meðan
iðandi öldurnar spegluðust i
hvít-máluðu þilfarsloftinu.

25

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0299.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free