Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
.. . hugsanir d medan kysst er
UNDIRFÖRLA KONAN:
! Skelfing er þetta leiðinlegt!
Ætli að hann fari nú ekki að
segja mér, hvað hann elski mig
heitt og biðji mig um að skilja
við Adrian! Hver veit nema ég
geri það. Adrian er svo
hræði-lega daufur — ég verð vitlaus ef
ég geri ekki eitthvað. En ef ég
skil við hann, er verst, að
Micha-el verður svo þreytandi
eigin-gjarn og vill að ég giftist sér.
Michael? Nei, þá heldur Alan.
Eða er það ekki ? Ég vildi að
Janice muldraði ekki svona,
þeg-ar hún kynnir fólk. Guð! Af
hverju hættir hann ekki? Hann
tekur allan varalitinn af mér.
Þó að ég færi nú að skilja við
Adrian og tæki saman við hann,
þá sagði Janice, að hann ynni
sér ekki nema skitnar tuttugu
þúsund krónur á ári, og ég get
ómögulega lifað af því ......
ÖSTÖÐUGLYNDA KONAN:
Kápa þrettán pund, hattur
þrjú pund, það gera fimmtán
pund. Svo þarf ég að fá mér skó
í sama lit, og í gær bauð Andrew
HÉIMILISRITIÐ ,
mér í eftirmiðdagskaffi, i dag,
held ég. Nei, það var á morgun.
Eða kannske það hafi átt að vera
í gær? Nei, þrettá’n og þrír eru
sextán. Af hverju skyldi Hitler
ekki vera giftur. Ég er viss um að
það er della, sem Ann sagði mér
um hann. Hann er svo
ofsafeng-inn á öllum öðrum sviðum ....
TAUGAÓSTYRKA KONAN:
Ég þori ekki að hugsa .... Ég
þori ekki að anda .... Ö, hvers
vegna er ég ekki hamingjusöm
í faðmi Tims? Mikið slær
hjart-að í mér ótt. Bara að ég mætti
deyja .... deyja! í>á gæti ég
svifið á öldum úthafsins og látið
vatnið leika um sál mína._ Elsku
góði Jan .... það sem hann
skrif-aði mér .... Hann skildi allt
svo vel .... Ö, að ég gæti farið
til hans núna og sagt honum
til-finningar minar, en hann giftist
Pauline í gær ....
KONAN SEM KVELUR:
Ég ætla að láta hann halda
áfram svolítið enn, og svo ætla
ég að hrinda honum frá mér —
33
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>