- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M7-8:59

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

minn hafi verió myrtur og að
morðinginn sé ung stúlka, sem
Downing var mjög
vingjarnleg-ur við. Hann hefur gefið í skyn
að mér verði blandað í málið, af
því að ég hef veitt stúlkunni
svo-litla aðstoð. Vilduð þið senda
nokkra menn hingað. Ég skal
reyna að tefja fyrir honum þang-

að til. Þakka yður fyrir........

En verið ekki lengi á leiðinni!"

Klukkan tólf sama kvöld, kom
logreglan á gistihúsið til Jolette
Jeffreys ......

n.kapítuli.

í Hollywood þökkuðu menn
sín-um sæla fyrir það, að hún var
ekki kvikmyndastjarna, unga
stúlkan, sem skyndilega hafði
orð-ið á fremur óhugnanlegan hátt,
efniviður í stærstletruðu
forsíðu-greinar dagblaðanna.

Hún hafði ætlað sér að verða
stjarna, en ekki heppnast það og
enginn leikaranna hafði svo
mik-ið sem heyrt um hajia, svo að
ekki var hægt að nefna „hneyksli
í kvikmyndaheiminum" í
sam-bandi við hana.

Sir James Belden átti ekki
heima í Hollywood, hann var nýr
og ókunnugur. Það var samt
leið-inlegt, að jafn virðingarverður
maður og hann skyldi vera
bendl-aður við þessa ævintýradrós!
Menn furðuðu sig á því að hann
skyldi láta blekkjast af henni og
það svo, að hann tók hennar
mál-stað og var sannfærður um sak-

leysi hennai’.

Frú Downing átti ekki sérlega
miklum vinsældum að fagna
með-al kynsystra sinna í Hollywood.
En í sorgarbúningi sínum litu
þær öðruvísi á hana. Hún hafði
sýnt hið mesta snarræði, þegar
hún lét handtaka
peningakúgar-ann. Það var ekki henni að kenna
að Jolette Jeffreys var
handtek-in. Hún hafði ætlað að veita
henni smáhlutverk, og það var
allt og sumt sem hún þekkti
hana — að þvi er hún sjálf sagði.
En við þetta allt bættist, að
Beld-en hafði tilkynnt henni, að hann
myndi hætta við að leika
aðal-hlutverkið í næstu kvikmynd
hennar.

Baynes Ashley, vinur hans, bar
í bætifláka. fyrir hann, þótt hann
hefði í flimtingum vörn þá, sem
Jim hélt uppi fyrir Jolette.

„Við getum ekkert sagt til
hagsbóta fyrir hana, annað en
það, að hún er snoppufríð. Allt
annað mælir gegn henni, að þvi
er ég get séð", sagði hann við
kunningja sína, sem svo sögðu
það öðrum. „Auðvitað hefur Jim
leyfi til þess að hætta við að
leika i „Nætur í Feneyjum", fyrst
ekki er farið að filma neitt af
myndinni. En afsökun hans er sú,
að hann kveðst ekki geta leikið
hlutverk sitt nógu vel, þegar
hug-ur hans er bundinn á öðrum
vett-vangi. Ég get fullvissað ykkur
um að hann ásakar Irmu ekki
fyrir neitt, enda getur hann það
ekki, og þau eru líka góðir vinir.

HÉIMILISRITIÐ

, 59

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0333.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free