Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 31 —
gjörð í landi,
þakkir þeirra, er nutu.
Svo hefir gömul
úr garði búa
móðir viljað mög.
Heill far þú, Hoppe!
Hjá oss skal
nafn þitt niðjum gefið.
Líttu mót vestri
yfir ljósum tind
Snæfells stjörnu blika!
Það er orðstír þinn,
hvers aðalskin
bíður betri daga. —
Hann oss lýsir,
meðan land byggist;
en ef það í sjó um sígur,
himinvængjað
man ið helga ljós
til hærri heima fl.júga.
LA BELLE.
Mín er meyjan væna
mittisgrönn og fótnett,
bjarteyg, brjóstafögur,
beinvaxin, sviphrein;
hvít er hönd á snótu.
himinbros á kinnum,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>