Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 79 —
Lýðurlandráður!
láttu sjá, — vel máttu
bæta vígi, brotin
braml það við og svaml.
Lýður landráður!
léttu nú svefnhettu,
enn er nóg að vinna,
einum er starf meinað.
TJti sat und hvítum
alda faldi
fjallkonan snjalla,
fögur ofan lög;
sá hún þar á,
er eybúa grúi
mesta manns að flestu
moldu vígði hold.
ALÞING HIÐ NÝJA.
(1840).
Hörðum höndum
vinnur hölda kind
ár og eindaga;
siglir særokinn,
sólbitinn slær,
stjörnuskininn stritar.
Traustir skulu hornsteinar
hárra sala;
í kili skal kjörviður;
bóndi er bústólpi
— bú er landstólpi —
því skal hann virður vel.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>