- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
110

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 110 —

Eg fann á millum fanna
í felling á blásvelli
lófa-lága við þúfu
lítinn grátittling sýta.

Flogið gåt ekki hinn fleygi,
frosinn niður við mosa;
augunum ótta-bljúgum
á mig skaut dýrið gráa.

Hefði eg þá séð, mér hefði
hundrað Toppum og undrum
ótal hornóttra hrúta
heitið drottinn, eg votta:

Abrahams dýrðar-dæmi
drengur í litlu gengi
aldrei á ísafoldu
eftir breytir, en neitar.

Kalinn drengur í kælu
á kalt svell, og ljúft fellur,
lagðist niður og lagði
lítinn munn á væng þunnan.

Þíddi allvel og eyddi
illum dróma með stilli,
sem að frostnóttin fyrsta
festi með væng á gesti. —

Gesti yðar! Því ástar
óhvikul tryggð til byggða
vorra leiðir á vorum
vegar-slynga tittlinga.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0120.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free