Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 131 —
Hnjúkafjöllin himinblá!
hamragarðar! hvítir tindar!
heyjavöllinn horfið á,
hnjúkafjöllin hvít og blá!
skýlið öllu helg og há!
hlífið dal, er geisa vindar!
hnjúkafjöllin himinblá!
hamragarðar! hvítir tindar!
Sæludalur, sveitin bezt!
sólin á þig geislum helli,
snemma risin seint er sezt.
Sæludalur, prýðin bezt!
þín er grundin gæðaflest,
gleðin æsku, hvíldin elli.
Sæludalur, sveitin bezt!
sólin á þig geislum helli!
SLÁTTUVÍSA.
Fellur vel á velli
verkið karli sterkum,
syngur enn á engi
eggjuð spik og rýkur
grasið grænt á mosa,
grundin þýtur undir,
blómin bíða dóminn,
bítur ljár í skára.
Gimbill gúla þembir,
gleður sig og kveður:
,,Veit eg, þegar vetur
vakir, inn af klaka
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>