Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 165 —
BÓSI.
Bósi! geltu, Bósi minn!
en bíttu ekki, hundur!
ella dregur einhver þinn
illan kjaft í sundur.
Hafðu ekki á þér heldra snið
höfðingja, sem brosa,
en eru svona aftan-við
æru manns að tosa.
SUNNAN-PÓSTURINN.
Pósturinn er sálaður Sunnan-,
syrgir bæði halur og nunnan,
af því hann var allra ánægja,
utan lands og innan ,,að sægja".
,,Fóta gåt ei fram róið árum",
forarhlandsins sökk hann í bárum,
liggur þar í leðju á botni.
— „Lifir dyggð, ])ó fjöræðar þrotni".
HALLGRÍMUR VESLINGUR.
Halli vesli, heyrðu mér,
hér er ég með busa
og ætla að sníða eyra af þér
eins og Malakusa.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>