Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 178 —
því ókeypis veitir hann öllum og jafnt,
og aldregi lækkar á pyttlunni samt.
Hann lifi og ríki nú leglinum á!
Vér lofum og prísum hann héðan í frá;
en tappann úr vestkútnum taka er mál
og tæma svo höfðingjans kaupfararskál.
ÓLUND 2 OG ÓLUND 3
OG 15 ERU NÚ.
Svarblá alda sogar mig,
samt er eg enn á floti;
skrúðafaldi skreytir sig.
— Skyldi eg aldrei kyssa þig?
Gott er að búa geddum hjá;
gleymir lúa nárinn;
heimi frúa horfnum frá
að honum snúa sílin blá.
Einhver kindin óþekkt mér
að sér vinda myndi;
þær eru að synda þar og hér;
— það er yndi Cuvier!
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>