- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
187

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

IÐRUNARVÍSUR

TIL GÍSLA ÍSLEIFSSONAR.

Eg á bágt,

mér er amað allt um kring,
innra lágt

einhver hulin tilfinning:
Gísli minn,

get ég hafa gjört þér mót?
Æ, minn vin,
eg vil gjöra yfirbót.

ÓLÁN!

Hraparlegt ólán, að á hvítasunnu
einhver mannskratti segir fyrst í hljóði,
— taktu það ekki illa upp, karl minn góði! —
ég vilji ólmur eignast hana Gunnu.

Svo er nú kann-ske kallað o’n-í tunnu,
svo fregnin berist fljótt um Víkur stræti;
svo kom upp óp og ys og borgalæti,
rétt eins og þegar Barnhýsingar brunnu.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0197.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free