Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
UPPHAFIÐ AF „CARRIC-THURA’
EFTIR OSSIAN.
(Breytt).
Hvort ertu hniginn
af himin-stöðvum,
gullhærði röðull,
og götum blám?
Nú hefir vestur
votum hjörum
svefngrindum snúið
og sæng þér gjörva.
Velta öldur
að veðhlaupi,
fýsast þig allar
fyrstar um sjá;
hægt þær hefjast
með hafriðu
og halla höfðum
að helgri sjón.
Fagurt er að líta
á Ijós-geislum
hvílu hafða,
hægt blundandi,
brosfagra sól,
bregður öldum,
bráð er burtför,
brennur ísgrá kinn.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>