- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
203

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 203 —

Verð ég að víkja
vöggu þinni frá;
kalt er að búa
við brjóst þitt, móðir,
og ég á mér
ekkert hæli
aftur að verma
inni mig.

Bíum, bíum,
barnið góða!
sofðu nú sætt
og sofðu lengi,
þó að höll
og hægindislaus
og grafkyr
í grundar skauti
vagga þín standi;
vertu í ró.

KVÆÐI EFTIR SCHILLER.

I.

DAGRÚNAR-HARMUR.
(Die líindesmörderin).

Heyri eg kirkju
klukkur dimm-gjalla;
vísir er runninn
vegu sína alla.
Sé það svo, — sé það
svo í guðs nafni!
Líkmenn! leiðið mig
á legstað aftöku.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0213.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free