Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 207 —
Siglir hann, siglir, —
svífur skip frá landi,
grátþrotin augu
grimmum manni fylgja;
fláráður heilsar
á fjarlægri strönd
heitmey nýrri.
Svo er hjörtum skift.
Barnunginn blíði
bjó á móður skauti
ástfalinn ungri
algleymis-værð;
brostu björt augu
bláfögur móti
móður augum
morgunrósar.
Og ástfagur
allur svipur
auma margminnti
á mynd hins horfna;
varpar hann í brjóst
vesalli móður
ástar óviti
og örvæntingar.
,,Hermdu mér, kona!
hver er faðir minn?"
svo spyr hin þögla
þrumurödd ómálgans.
.,Hermdu mér, kona !
hver er maður þinn?"
Hló við helvíti
í hjarta mínu.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>