Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 209 —
Eiðar hans allir
í eyrum mjer hljóma, —
meineiðar allir
margfaldlega,
— allir um eilífð!" —
Andskotinn þá
þreif mér þjófs-hönd lífs,
að þjakaði eg syni.
„Friðþjófur! Friðþjófur!
á fjarlægri strönd
elti þig vofan
hin ógurlega,
hrífi þig hvarvetna
helköldum greipum,
svifti þér sárlega
úr sælum draumi!
Stari þér í augu
úr stjörnu skínandi
helbrostið auga
hnigins sonar!
elti þig ógnmargt
um alheim víðan,
hneppi þig burtu
frá himindyrum!"
Sjáið og skiljið!
sonur mér að fótum
dauðsærður lá
og dreyra roðinn;
sá eg blóð blæða; —
blæddi þá ei minnur
fjör úr æðum
fáráðrar móður.
14
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>