- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
212

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 212 —

„Tárin að ónýtu falla á fold,
fá hann ei vakið, er sefur í mold;
segðu, hvað hjartanu huggunar fær,
horfinnar ástar er söknuður slær, —
guðsmóðir vill þér það veita".

„Tárin að ónýtu falli á fold,
fái hann ei vakið, er sefur í mold;
mjúkasta hjartanu huggunin er,
horfinnar ástar er söknuður sker,
á harminum hjartað að þreyta".

III.

ALHEIMS-VÍÐÁTTAN.
(Hugmyndin er eftir Schiller).

Eg er sá geisli,
er guðs hönd skapanda
fyr úr ginnunga
gapi stökkti;
flýg eg á vinda
vængjum yfir
háar leiðir
himinljósa.

Flýta vil eg ferðum, —
fara vil eg þangað,
öldur sem alheims
á eiði brotna,
akkeri varpa
fyrir auðri strönd
að hinum mikla
merkisteini
skapaðra hluta
við skaut alhimins.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0222.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free