- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
216

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 216 —

skynsemi vorrar eyrum undir
allar hljómar um næturstundir
lofsöngur þeirra, ljóminn hreinn:
,,Lifandi drottinn skóp oss einn!"

ÚR LEIKRITINU

CARL DEN FEMTES DØD.

EFTIR CARSTEN HAUCH.

5. þ á t t u r.

Snemma morguns, í birtingu, úti, nálægt Klöru-klaustrú

í V’alladolid.

Gonzales. Alonzo.

Alonzo: Hver er þar?

Gonzales: Einn, sem

þig engu varðar!

Alonzo: Gonzales, heyri eg,
mér gegnir nú.

Gonzales: Hann að vísu.

En hver ert þú?

Alonzo: Vinur keisarans.

Gonzales: Vitum hann dauðan.

Alonzo: Svo er það sagt
og sízt að dylja,
hentleg að heimför
hans er orðin.

Gonzales: Ert þú hér kominn
Alonzo?

Alonzo: Heyrðu! —

Gonzales: Nú grær grund

yfir gröf vors herra.

Alonzo: Heyrðu, Gonzales,
hún er mér sögð

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0226.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free