Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 221 —
V.
STRANDSETAN.
Hvítur í lofti ljúfu
líður í næturblæ
már yfir myrku djúpi;
máninn er hátt yfir sæ.
Hákarl úr hafi lítur
og horfir upp að bæ;
már yfir miði grúfir;
máninn er hátt yfir sæ.
Sálin mín /tvikula, kæra!
þú kvíðir sí og æ;
mundar-nær mari þú situr;
máninn er hátt yfir sæ.
VI.
MÁRINN FORVITNX.
Márinn, hann vita vildi, hvað
af vörum fögrum streymir þér,
þig er hann sér á þessum stað
þrýsta þeim fast á eyra mér.
Márinn flögrar við fjöruborð,
forvitinn spyr hið Ijósa kvöld:
„Mundu það vera eintóm orð,
eða brennandi kossafjöld?"
Sízt veit nú, kæra, sálin mín,
hvað svo mér friðar hug og geð;
orðin kossunum eru þín
svo undarlega vafin með.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>