- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
223

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 223 —
IX.

VORVÍSUR.

Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn;
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrasta-söngur;
eins mig fýsir allt af þó
aftur að fara í göngur.

X.

Lán, er vilt ei låta mér,
leikinn vil eg skakka þér; —
gríp eg þig með hörðum höndum,
hertek þig og reyri böndum.

Fella skal eg ok þig á,
erja og sveitast skaltu þá;
loks úr mæddri mundu fellur
mækir þér, — en und mér svellur.

Blóðrás döpur mæðir mig,
mitt á köldum banastig
hlýtur að slokkna lífið ljósa;
kezt eg í því eg sigri hrósa.

XI.

Kveöið í útlegB.

Hlegið var og sungið, —r
úr heiði skein,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0233.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free