Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 379 —
Jónas orti upp aftur, „Móðurást", sjá bls. 49—50 og 332. En 4.
1. er „úr erfiljóðum einum, er Þórður Sveinbjörnsson hefir
kveð-ið" (Sf., XI., 43, nm.). Þeir séra Árni og Þórður gáfu ut
Sunn-anpóstinn.
Bls. 165—166. — HALLGRÍMUR VESLINGUR. — Ehr. i
kvæðaheftinu i Bmf. 13, fol. — Óvíst um hvern kvæðið er. —
1. er., sbr. Jóh. 18., 10.
Bls. 166. — FINGURBJÖRGIN. — Ehr. (á hálfu blaðinu)
í kvæðaheftinu í Bmf. 13, fol.; á því eru einnig 2 næstu vísur og
brotin úr kvæði Feuerbachs, sem hér eru á bls. 231. — Allt
skrifað með blýanti, en skýrt enn.
Bls. 166—167. — BÁGINDI. — Tvö ehr. til, annað er
skrif-að með blýanti á sama blað og næsta vísa hér á undan; hitt er
á sama smáblaði í K. G. 31 a, sem brotin úr Formannsvísum og
vísan „Dyrri litli!" eru á; er þessi vísa skrifuð þar með bleki
og fyrirsögnin sett þar. í fyrra ehr. er í 2. 1. „er þér heimilt"
f. „efa máttu", og í 5. 1. „illa" f. „arga"; í fyrstu hefir einnig
staðið „illa" í síðara ehr., verið strikað yfir það og skrifað
„arga" fyrir ofan. Okunnugt er, hvaðan fyrri hlutinn er og hvað
Jónas á við.
Bls. 167. — SPARNAÐUR. — Ehr. í Bmf. 13, fol., hripað
upp með blýanti á eftir vísunum, sem hér eru næstar á undan;
eru þær í kvæðaheftinu, sem „Ferðalok" er í og getið er bér á
bls. 322.
Bls. 167. — VALDI. — Ehr. í K. G. 31 a, á lausu blaði
(st. 22,2 x 8,8 cm). — A milli vísuhelminganna er dálítið ßtærra
bil en milli línanna. —- „Valdi hét hundur Jónasar. Jónas reiddi
hann fyrir aftan sig- yfir vatnsfall, er hann kvað vísuna", segir
í aths. á bls. 144 í 3. útg., sbr. nmgr. á bls. 201 í 1. útg. — Þetta
er þó grunsamleg aths. — Óvíst er, hve nær Jónas hefir gert
vísuna, en á síðasta ferðalaginu hans, 1842, var Þorvaldur
Böðv-arsson fylgdarmaður hans (annar). Var hann þá í
Bessastaða-skóla að læra til prestskapar.
Bls. 168. — MÁLSVÖRN. — Ehr. 1 K. G. 31 a, á sama blaði
og næsta vísa á undan. Tilefnið ókunnugt og við hvern er átt.
Bls. 168. — UM MOSFELLINGA. — Prentað fyrst í Óðni,
I., 88. Fylgir visunni þar þessi aths.: „Mosfellingar þóttu engir
búhöldar um það leyti, sem Jónas dvaldi hér 1 Reykjavik á
æsku-árum sinum. Er svo sagt, að þeir reiddu heyið á sumrin ofan í
Reykjavik og seldu þar fyrir kramvöru og brennivín.–-—
Jónas var á ferð uppi í Mosfellssveit, þegar hann orti vísuna,
og var þá einn bóndinn að búa sig á stað í heysöluför til
Reykja-víkur". — Visan er í 3. útg., bls. 147. Segir útgefandinn þar, að
RIT J. HALLGR. I.
25
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>