Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 15 —
TIL PÁLS MELSTEDS SÝSLUMANNS.
Reykjavik, 29. Júlímánaðar 1837.
Velborni, hæstvirti herra kammerráð!
Ég verð að biðja yður forláts á gleymsku
minni; þegar ég hitti yður í Reykjavik, var ég með
bréf til yðar í vasanum, en mundi ekki eftir að
ekila því. Svo, þegar ég kom á Álftanesið, voruð
þér farinn á stað austur, og síðan hefi ég öngva
ferð fengið, fyr en núna með Bjarna á Laugardælum.
Mér fellur verst, ef bréfið hefir eitthvað áríðandi
að geyma. Bónarskráin til konungs, viðvíkjandi
fulltrúaþingunum, liggur hér, en mér þykir hún
vera höfð of lítið á lofti. Ég er að segja manni og
manni frá henni, sem ég á tal við, og hafa þeir
flest-ir ekki heyrt hana nefnda. Séra Árni þorir ekki að
setja nafn sitt undir hana, af því hún sé of berorð,
og „Lector" hafði látið telja sér trú um slíkt hið
sama. Ég reyndi samt til, eins og mér var auðið,
að leiða hann í allan sannleika, og var ekki annað
að heyra, en að hann léti sér segja, hvað sem hann
nú gjörir.
Ég hefi verið að flakka hér um fjöllin smátt
og smátt, og séð hitt og annað ekki ómerkt.
Ein-hver kvilli í augunum hefir samt verið mér að meini,
svo ég hefi ekki þorað að hætta mér í langferð, og
hamingjan má ráða, hvort mér auðnast sú ánægja,
að hitta yður heima og tala við yður, þótt mig
raun-ar langi til þess margra hluta vegna. En sumarið
hleypur úr höndum mér, og ég á enn þá langan
veg ófarinn.
Með ást og virðingu
J. Hallgrímsson.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>