- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
17

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 17 —

og taka saman ráð mín við Br. Einhver
andskot-inn skal verða í frammi hafður. Yrði einhver jörð
losuð að setja í pant, þá getur Tumi útvegað lán~
ið. Margt hefi ég séð í sumar, bæði í jörð og á. Nú
lauk ég við Njálu áðan, til að búa mig undir
alþing-iskomuna. A propos um alþing. Þorsteinn segir þér
af bænarskránni og hvernig Árni þorði ekki að
setja nafn sitt undir hana. í Garðahrauni kom á
mig þoka. Það var svo sem nokkurs konar
forar-þoka. „Myndi þetta vera helvítis holtaþokan?"
sagði ég. „Já", sagði Árni, „það er mín meining"
(en það var uppi hjá stiftamtmanni), og grét. —
Það var eins og kálfur myndi hafa farið að brosa.
Ég hefi ekki talað við hann, nema þar, og bárum
við hann ofurliði. Mér er nú sagt, að hann kalli
okkur ofstopa, og sé æði oft farinn að blóta og
hafi fengið skyrsótt og sé æði oft farinn að gráta.
„Hefirðu cpagið av í sumar, Jónas minn?" Nei, ekki
hefi ég gert það í sumar; ég má segja eins og
stelp-an í Vestmannaeyjum, þegar maddaman sagði við
hana, „at hun havde nok smagt den". ,,Ónei,
mad-dama góð", sagði hún, „aldrei danskan". Þessi saga
er svo sönn, að henni hefði ekki getað verið logið.
Ólafur er trúlofaður dóttur séra Þorláks í Móum, —
móbíldóttum stelpuhnoðra. — Oddgeir getur sagt
þér frá henni; hún er meinlaus, held ég
..byld-Tinið. Hefirðu heyrt söguna af mér, þegar ég kom
nærbuxnalaus á bæinn, og fara átti að taka í mig,
auman mann? Jæja, ég skal þá segja þér hana
seinna. Ég hefi öngva skildinga að senda þér núna.
Gott verzeihe es mir, en éttu óhræddur það, sem
kynni að koma fyrir Fjölni. — ,,Wer weiss?" segir
Stefán í Selkoti. Það er Stefán, sem nefndur er í
Fjölni. Hann sagði mér af sér sögu, þegar tveir voru

2

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0025.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free