- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
46

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 46 —

og Rauðamelsheiði á Skógarströnd, út í
Drápuhlíð-arfjall, að Hofstöðum (fann í Haugsnesi, að ég
held, legstað Þórólfs Mostrarskeggs), upp á
Skóg-arströnd aftur og þaðan yfir á Fellsströnd, og svo
kringum allan Breiðafjörð út undir Haga á
Barða-strönd, þaðan yfir Leikvöll hingað á Bíldudal,
héð-an í Tálknafjörð og Patreksfjörð og yfir í
Sauð-lauksdal og hingað til baka. — Nú förum við
héð-an vestur og norður eftir, það sem sumarið endist.
Verð ég þá búinn að sjá Vesturland, svo að ég hefi
fengið nokkurn veginn ljósa hugmynd um það, ef
ég endist til þess á annað borð. Ég kemst ekki til
að skrifa yður neitt í þetta sinn, því skipið bíður,
sem á að flytja okkur yfir Arnarfjörð. Ég sá
stein-inn í Reykholti, sem Þ. Helgason hélt væri
leg-steinn yfir Snorra Sturluson, og efast ég ekki um,
að það sé rétt. Letrið er raunar mest allt máð af,

en þó má glöggva á einum stað: Ljj (Snori?)
og það, sem ég marka mest: ofan á steininum,
fyrir neðan þetta teikn: , stendur glöggt

(sem ég les tjf^j J\ I ) í Það er sjálfsagt, að ég

sendi yður uppdrátt af steini þessum við fyrsta
tækifæri. Ég er vonum skárri til heilsu, en þoli samt
ekki vel áreynsluna, enn sem komið er. Ég skrifa
meira við fyrsta tækifæri.

Yðar hávelb.h. elskandi

J. Hallgrimsson.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0054.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free