- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
53

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 53 —

TIL FINNS MAGNÚSSONAR.

Staddur á Bessastöðum, 18. d. Oktbm. 1840.

Hávelborni, allrahæstvirti herra etatsráð!

Nú er illa komið, því seinasta skipið, sem
héð-an fer til Hafnar, er nú ferðbúið fyr en mig varði,
svo mér er afskamtað að skrifa yður eins rækilega
og ég hafði ætlað mér. Ég er, að kalla má,
nýkom-inn aftur úr seinustu ferð minni i sumar og var
hún mest gerð til að skoða þann hluta af
Árnes-sýslu, sem ég hafði ekki séð áður; voru það
eink-um Skeiðin og Hrepparnir. Vesturlandið sáum við
Steinstrup mestallt í sumar, að minnsta kosti svo
vel, að ég hefi ljósa hugmynd um lögun þess og
landslag, svo nú held ég [að ég] gæti lýst þvi lika
með aðstoð sóknarlýsinganna. Ég á nú í rauninni
ekki óséð nema Austurlandið, en það er líka
tölu-verður fláki. Ég ætla nú í vetur að byrja á
Ár-nessýslu svo sem til reynslu og vita, hvernig mér
tekst að lýsa henni. — Eins held ég áfram með
lýsingarnar á brauðunum, þar sem ég hvarf frá í
vor; ég verð fljótt búinn með þær. Sóknarlýsingar
liggja hjá mér frá 4 eða 5 prestum, en þær eru
inni í Reykjavik, svo ég get ekki sent þær núna,.
af því bréfið á að fara undir eins. Flestir prestar,
sem ég fann vestra og ekki voru búnir, hafa lofað
góðu, hvernig sem þeir efna það.

Eftir uppástungu minni hefir félagsdeildin Í
Reykjavik fallizt á að sjá um, að dagbækur yrðu
eftirleiðis haldnar yfir veðrið í öllum héruðum
landsins, er síðan komi á ári hverju í vörzlu
fé-lagsins. Nefnd manna, landphysicus Thorstensen,.
Gunnlögsen skólakennari og ég, á að koma þessu,
í lag. —

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0061.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free