- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
69

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 69 —

að sjá hann Gísla minn Hjálmarsson, til að hugga
hann eftir refsinguna; — það á nú að fara að
hýða hann fyrir skottulækningar. Ef þú skrifar
honum, þá geturðu sagt honum það eftir mér. Ég
er nú að skera upp, þ. e. að kryfja kútmaga
dags-daglega, sömuleiðis að kroppa (skelettera) arnir
= erni og hrafna og mörg önnur dýr, og þess á
milli að yrkja „Hulduljóð"; það verður fallegt
kvæði. Ég er að kalla búinn með
brauðalýsingarn-ar og sömuleiðis að koma á stað veðurbókunum
mínum; — mikið þykir mér vænt um þær,
kunn-ingi! —

Hvað líður Fjölni? Eg get ekkert sent honum,
nema ef það væri ofurlítið og vesælt kvæði,
,,A1-þing hið nýja", og eins getið þið tekið hjá Finni
Thorvaldsens-kvæðið, ef það verður ekki prentað
annarstaðar í vor; sömuleiðis 5 dali, ef ég fæ
nokkra peninga. Hvað líður þér og skólanum?
Scheving karlinn þráir þig; — íslenzka málfræði
vantar okkur umfram allt —; Egilsen hefir
ein-hvern veginn ekki tök á að búa hana til. Félagið
verður að låta prenta, ef þú nennir að semja.

Ekki tímdi Melsted að bjóða mér í veizluna
sína, enda orti ég ekki neitt. — Frökenin er nú
búin að taka uppundir og Gvöndur okkar kominn
norður í Núpasveit.

Líði þér sem bezt, vinur!

Þinn

J. Hallgrímsson.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0077.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free