- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
98

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 98 —

Til FINNS MAGNÚSSONAR.

Staddur á Steinsstöðum í Öxnadal,
6. Sept. 1841.

Hávelborni, allrahæstvirti herra etatsráð!

Enn fer sem oftar, að þegar ég ætla að fara að
skrifa yður, er timinn svo naumur, að ég verð að
kasta til þess höndunum. Þessum seðli á að fylgja
framhaldið af fornfræðaskýrslu þeirri, er ég sendi
yður upphafið af frá Búðum eða Ólafsvík. Og nær
þetta nú samt ekki lengra en í Sönghelli; ollir því
ekki svo mjög viljaleysi, sem hitt, að mér er
ómögu-legt, svo að segja, að hreinskrifa neitt svona á
ferð-inni, bæði vegna annríkis og eins hins, að þó ég
hafi einhverja tómstund, þá er ég oftlega heitur,
þreyttur og skjálfhentur. Enda sleppir hér
rúnun-um að kalla má, því hvernig sem ég hefi spurt mig
fyrir, hefi ég síðan ekkert séð, sem teljandi sé.
Aft-u:* hefi ég séð og athugað marga síaði merkilega í
fornsögu landsins, og þó hvergi eins og í
Snæfells-nessýslu. Ég las Eyrbyggju og Landnámu á
kvöld-in í poka mínum og spurði mig svo fyrir um það
sem ég gat á daginn, og gæti ég í rauninni ritað
margt um það. Veðráttan hefir annars verið mér
bág seinni part sumarsins, sökum votviðra og síðan
kulda. Einhver hefndarnorn situr fyrir mér, svo ég
held ég ætli aldrei að komast í Siglufjörðinn; ég
er nú að voka yfir því, en snjórinn hamlar mér.

Mannskaðann okkar fréttið þér, þótt ég skrifi
hann ekki. Ég hafði lofað amtmanni Bjarna að
finna hann, ef ég kæmist svo langt; enda náði ég
rétt í að sjá hann fara ofan í gröfina.

Ég má nú til að hætta, því ég verð að skrifa

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0106.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free