- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
169

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 169 —

þig að skýra nefndinni frá því, sem henni kemur viðr
og Fjölnismönnum slíkt hið sama á næsta fundi.

Ég hefi horngrýtis-köldu í dag, svo það má varla
heita, ég geti haldið á penna, og því nenni ég ekki að
svara þér öðru upp á ljóðið þitt, en því einu, að svo
fallegt sem það er, þá er þó margt í þvi, sem heyrir
til barbarismo, og varla hefi ég nokkurn tíma séð vísu
sem meir væri nykruð eða finngálknuð. Börnin hans.
Hauchs liggja tvö fyrir dauðanum í typhus, 13 vetra
stulka, kolmórauður aumingi, og önnur hvít, 5 vetra.
Hér er óhollt loft á Saurum.

Finnur skal fá bréf frá mér hið allra fyrsta; ég
er að bíða svars frá öðrum. En útvega verður hann
mér, félagsins vegna, fljótt, til láns eða kaups,
Zett-erstedt, Insecta lapponica; án þessarar bókar er ekki
hægt að komast fram úr skorkvikindunum á Islandi,
en hún er ófáanleg hér á Saurum.

Viltu ekki heilsa Skúla mínum og biðja hann, þó
ég sé óverðugur, að hlaupa til og skrifa mér ögn og
setja mig inn i „de köbenhavnske Forhold"; hann er
þó eini maðurinn, sem nennir að taka á penna. Segðu
Hraungerðisgrána, iþróttabróður mínum, að ég eigi
hjá honum bréf, og heilsaðu séra Pétri, G. M., Sörni
mínum einkanlega, og spurðu hann ítarlega um, hvað
hann viti um reiturnar minar, hvort nokkuð muni
enn vera til af þeim o. s. frv., og berðu mér svo
aftur skítinn á tánum. Hvað ætli líði
suðausturfjórðung-inum?, og fæ ég aldrei leiðréttingar-blað af honum?
Vill enginn reka vel eftir Olsen. Hvað veiztu ítrast
um skólann? Þú verður nú að fara á hnotskóg, og
hafa öll net og öngla úti, til að komast eftir, hvernig
á öllu stendur og í öllu liggur; þú veizt, okkur riður
báðum á að vita það.

Vertu nú sæll og skrifaðu mér fljótt, elskan min.

J. Hallgrimsson.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0177.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free