Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 210 —
óleyfilegt að njóta framvegis sömu gæða, eða meft
öllu ómögulegt. Þá er hver sá illa farinn, sem búinn
er að binda hjartað við eitthvað það, sem hann þá
hlýtur án að vera. — Því rótgróinn vani leggur
eitt-hvert band á manninn, svo margir fylgja honum
ósjálfrátt; og ekki eru þeir svo fáir, sem hafa lifað
gleðilausa elli, af því þeir hvergi fundu það, sem
þeir í.ungdæminu nutu, og hjartað þess vegna
girnt-ist á fullorðins-aldrinum. — Sá sparar sér því mikla.
sorg, og margan söknuð og kvíða, sem numið hefir þá
gullvægu kúnst, að geta verið án þess alls, sem
heim-urinn megnar að svifta mann. Þegar heimsins blíða.
felur sig, og náttúrunnar umbrot skelfa. manninn,
þegar hallæri eða stríð eða drepsóttir geisa í
lönd-unura, og konungarnir titra, þá er sá maður
óhrædd-ur, þvi hann kvíðir öngvum jarðneskum missi;
stöð-ugur við sitt skylduverk bíður hann hvers, sem a5
höndum ber, og tekur ánægður alls kyns skorti, alls.
slags þrengingu og dauða, því hann segir með Davíð:
Nær ég að eins hefi þig, drottinn, hirði ég hvorki um
himin né jörð, því þó að líf og sál vanmegnist, ertu
samt drottinn. Svo farsælt er það að elska ekki
heiminn, því það gefur manni styrk á hinni vondu
tíð. Vér þurfum ekki þar fyrir að flytja oss eins og
burtu úr heiminum fyrir tímann; ekki heldur, af
ótta fyrir hans hviklyndi, að forðast allan
félags-skap vorra samferðamanna. Marga saklausa,
yndis-fulla gleði hefir guð i heiminum veitt hverjum, sem
hennar rétt leita, en næst umgengninni við guð og
ánægjunni yfir afloknu skylduverki mun enginn svo
hrein, engin, sem líkist eins himi[n]sins sælu og
glcðin af umgengni við dyggðuga vini. Hennar
skyld-um vér því ei sízt leita, þegar vér annars erum oss
úti um einhver jarðnesk gæði. — En, góðir bræður,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>