Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 277 —
því, að hann gåt ekki veitt sér hæfilega aðbúð. Um
þessar mundir, þegar hann lá dauðvona í fjarlægu
landi, hugsaði hann samt minna um sjálfan sig en
ættjörðu sina. Þetta votta ljóslega bréf þau, er hann
þá ritaði til vina sinna til Kaupmannahafnar. Þegar
vorið kom, hresstist hann svo, að hann gåt aftur leitað
heim á leið, og kom til Danmerkur i Maímánuði. Þá
veitti konungur honum Breiðabólstað í Fljótshlið.
Hann fór samsumars út til Islands, og sá aftur
ætt-jörðu sina eftir 5 ára burtuveru. Um haustið gekk
hann að eiga heitmey sina, er áður er nefnd, og sat
hann þann vetur á Garði i Aðal-Reykjadal. Á
næst-komanda vori tók hann prestvigslu af kennara sinum
og vini, herra Steingrimi biskupi, og settist á
Breiða-bólstað. Var hann þá um sama leyti kjörinn
prófast-ur i Rangárþingi. Þetta var um vorið 1835. Nu eru
síðan liðin 6 ár. Það er stuttur tími og ómerkur i ævi
margra manna, en mikið hefir Tómas lifað og
af-rekað á þessum 6 árum. Ritgjörðir hans eru
margar og merkar, prentaðar og óprentaðar;
embættis-meðferðin frábær, og heimilislifið allt merkilegt. En
að lýsa þvi öllu þyrfti að biða rósamari stundar,
þeg-ar saknaðarbeiskjan deyfist. Hér er því að eins sagt,
að með þessum manni er oss horfið hið fegursta dæmi
framkvæmdar og ættjarðarástar. En því segi ég
horf-ið? Það er til og verður til um langar aldir, og nú er
það oss næst, því engi veit, hvað átt hefir, fyr en
misst er.
VIÐAUKI.
Lítil athugasemd.
8. Janúar 1844.
Ég hefi ekki haft mikla trú á, að séra Tómas
hafi nolckurn tima verið sérlegur smekkmaður á
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>